Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 111
111. fundur
Fundur í hafnarstjórn Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,þriðjudaginn 3. febrúar 2009 og hófst hann kl. 16:00Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Sigurður Ægir Birgisson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Valdemar Einarsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdarstjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Reynir bauð fundarmenn velkomna sérstaklega tvo nýja fulltrúa Hafnarstjórnar Örn Arnarson og Sigurð Ægi Birgisson. Starfmönnum falið að staðfæra þær breytingar sem orðið hafa á hafnarsvæði frá því núgildandi skipulag var samþykkt, svo sem varnargarða og bryggju á austurfjörum. Hafnarstjórn var sammála um að Faxeyrarhöfn verði áfram inni á skipulagi, gert verði ráð fyrir brú yfir í Mikley og gert verði ráð fyrir virkjanasvæði í Mikleyjarál. Ennfremur leggur Hafnarstjórn til að nýr ós verði settur inn á aðalskipulag í samræmi við tillögur Siglingarmála sem verður vestan við Einholtskletta. Skoðaðir verði allir virkjanakostir á Hafnarsvæðinu, gert verði ráð fyrir virkjanasvæði á austurfjörum ásamt efnistökusvæði. Svæði á Suðurfjörum verði merkt að hluta sem opið svæði til sérstakrar nota.
2. 200705114 - Önnur mál
Starfmenn gerðu grein fyrir tilboðum sem bárust í verkið endurbætur á Vogarbryggju. Hafnarstjórn samþykkir að taka lægsta tilboði sem kom frá Gröfuþjónustu Olgeir.


