Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 109
109. fundur
Fundur í hafnarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 8. desember 2008 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgeir Gunnarsson, Halldór Tjörvi Einarsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Birgir Árnason,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200804073 - Dýpkun í Hornafjarðarhöfn
Kallað var til fundar á mánudagsmorgun eftir að í ljós kom að ekki væri hægt að dýpka við Bátstanga nema með því að sprengja klöpp sem þar er. Kom fram að framkvæmdin væri mikilli óvissu bundið hvað varðar umfang. Hugmyndir um kostnað við sprengingar og gröft í framhaldinu gæti verið um 10 m.kr. Hafnarstjórn er sammála um að láta rannsaka betur svæðið áður en ráðist verði í framkvæmdir. Hauki Inga og Birgi falið að vinna í málinu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.


