Hafnarstjórn
Fundargerð Hafnarstjórnar 46
46. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 26. maí, kl. 20:00.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Axel Jónsson, Friðrik Ingvaldsson, Reynir Arnarson, Albert Eymundsson og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerðir
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 45. fundur 7.apríl 2003.
Engar athugasemdir
2. Ósk um umsögn á umsókn um undanþágu vegna vigtarmanns
Bréf frá Fiskistofu, dags. 19. maí s.l. þar sem óskað er eftir áliti hafnaryfirvalda á Hornafirði vegna undanþágu vigtarmanns hjá Skeggey ehf, skv. ákvæðum 36. gr reglugerðar nr. 522/1998
Hafnarstjórn sér ekkert því til fyriurstöðu að undanþágan verði veitt
3. Ársreikningar 2002
Albert fór yfir ársreikning fyrir árið 2002.
Þar kemur fram að rekstrartekjur eru 61.219.652,- og rekstrarkostnaður er 52.541.803,- Fjármagnsgjöld eru 3.178.788,- og hagnaður ársins er því 5.499.061,-
Fastafjármunir eru 119.842.630,- og veltufjármunir 7.324.312,- Eignir samtals eru því 127.166.942,-
Eigið fé er 85.264.125,- og skuldir eru samtals 41.902.817,- Þ.a. eru lífeyrisskuldbindingar 1.249.364,- langtímaskuldir 17.486.421,- og skammtímaskuldir eru 23.167.032,- Niðurstöðutala efnahagsreiknings er því 127.166.942,-
Reikningarnir eru samþykktir samhljóða
4. Rekstraryfirlit 1. janúar til 22. maí 2003
Albert kynnti rekstraryfirlit hafnarinnar frá 1. janúar til 22. maí s.l., en þar kom fram að reksturinn er samkvæmt áætlun.
5. Grynnslin - kynning
Helgi Már kynnti mælingu á Grynnslunum frá 1. maí s.l. og þeirri vinnu sem fram hefur farið vegna undirbúningsrannsókna á dýpkun á innsiglingarrennu sem fyrirhuguð er að verði boðin út í næsta mánuði.
Rætt hefur verið við Hafrannsóknarstofnun, Umhverfisstofnun, Skipulagsstofnun og Iðnaðarráðuneytið vegna væntanlegra framkvæmda nú í ár og í framtíðinni.
Nefndarmenn eru sammála þeirri undirbúningsvinnu sem fram hefur farið.
Axel vakti athygli á hvort ekki sé rétt að framtíðardýpi í rennunni verði 9,0 metrar.
6. Önnur mál
Albert kynnti erindi frá Sal ehf., Reykjavík, vegna umsóknar um lóð skv. bréfi dags. 26. maí 2003.
Hafnarstjóra og bæjarverkfræðing falið að skoða alla möguleika varðandi staðsetningu og leggja fyrir næsta fund.
Ari vakti athygli á námskeiði fyrir hafnarstarfsmenn á vegum Slysavarnarskóla sjómanna og Hafnarsambandsins og sagði frá fyrirhuguðum fundi Samgönguráðuneytisins og Hafnarsambansins á Reyðarfirði þar sem nýju hafnarlögin verða kynnt.
Einnig spurðist hann fyrir um fyrirhugað dýpkunarplan vegna hafnarinnar.
Fundi slitið 21:35
Ari Jónsson Albert Eymundsson
Axel Jónsson Helgi Már Pálsson
Friðrik Ingvaldsson
Reynir Arnarson


