Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 105
105. fundur
Fundargerð hafnarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 11. september 2008 og hófst hann kl. 12.00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Halldór Tjörvi Einarsson, Páll Guðmundsson, Sigurður Ægir Birgisson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE),
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200711046 - Breyting á samgönguáætlun 2007-2010
Reynir gerði grein fyrir heimsókn hafnaráðs fyrir skömmu. Upplýsti að enn væri hægt að sækja um styrki til dýpkunar, rannsóknir og landbrot í höfnum. Hafnarstjórn er sammála um að leggja eigi áherslu á rannsóknir á innsiglingunni. Einnig að auka eigi viðhaldsdýpkun í höfninni í 30.000 rúmmetra. Þá var rætt um bryggjuframkvæmdir og auka viðlegupláss í höfninni um 100 m. Rætt um að í framtíðinni að tengja saman Álaugareyjarbryggju og Krosseyjarbryggju. Einnig rætt um möguleika á bryggju sunnan megin í höfninni.
Hafnarstjóra falið að senda erindi til Siglingastofnunar um þessi verkefni.
2. 200705114 - Önnur mál
Lagt fram bréf frá Siglingastofnun um bráðabirgðarákvæði um verðbætur í útboðum á hafnarframkvæmdum. Hafnarstjórn hafnar erindinu.
Rætt um ýmis mál sem starfsmenn voru beðnir um að leysa úr og varða t.d. umgengni við höfnina.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:00


