Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 104
104. fundur
Fundur í hafnarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,þriðjudaginn 19. ágúst 2008 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgeir Gunnarsson, Halldór Tjörvi Einarsson, Páll Guðmundsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Sigfús Harðarson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200807053 - Styrkur vegna dælingar úr Hornafjarðarhöfn
Lagt fram bréf frá Siglingastofnun dags. 17. júlí 2008 þar sem samþykkt var að auka styrk vegna dýpkunar í Hornafjarðarhöfn.
2. 200710005 - Stofnun útibús á vegum Siglingastofnunar
Lagt fram bréf frá Samgönguráðherra dags. 24. júní 2008 þar sem hann samþykkir fyrir sitt leyti að setja á fót útibú Siglingastofnunar á Höfn.
3. 200808034 - Framkvæmdir
Gerð grein fyrir stöðu framkvæmda við Álaugarey. Kom fram að botninn er þéttur og niðurrekstur erfiður af þeim sökum. Eftir að hamar var þyngdur hefur gengið betur að reka niður stálþil.
Gerð grein fyrir tillögum um frágang á milli netagerðar og Bátstangabryggju. Hafnarstjórn samþykkir að steypa þekju á milli bryggju og netagerðar skv. teikningu og kostnaðaráætlun frá Verkfræðiþjónustunni ehf. dags. 13. ágúst 2008.
4. 200804040 - Efnistaka úr Friðsæld
Gerð grein fyrir námu í Friðsæld og ákvörðun Vegagerðarinnar um að selja ekki efni úr námunni. Kom fram að rætt hafi verið um málið í bæjarráði. Hafnarstjórn tekur undir með bæjarráði að mikilvægt sé að hafa námuna opna fyrir alla.
5. 200808036 - Skútan Elý
(Sigríður Kristinsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið). Kom fram að eigandi skútunnar er fundinn en það var hollenskt tryggingarfélag. Skútan mun fá fararleyfi þegar hafnargjöld hafa verið greidd.
6. 200808035 - Björgunarlaun
(Sigríður Kristinsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið). Kom fram að lögfræðingur sveitarfélagsins og lögfræðingur útgerðarinnar munu hittast til að ræða sátt í málinu.
7. 200804075 - Starfsmannamál
Rætt um breytingar á starfsmannamálum hafnarinnar. Mikið rætt um vaktaáætlun, vigtunarmál og fleira. Hafnarstjórn samþykkir að auglýst verði eftir hafnsögumanni sem taki til starfa eigi síðar en 1. janúar 2009. Réttindi hafnsögumanna taka mið af reglugerð um leiðsögu skipa nr. 320/1998 og lög um vaktstöð siglinga 20. mars 2003. Lögð áhersla á að nýr starfsmaður verði ráðinn til hinnar nýju stofnunar sem varð til við sameiningu áhaldahúss, veitnanna og hafnarinnar. Jafnframt er starfsmönnum falið að gera tillögu að nafni fyrir hina nýju stofnun.
8. 200808044 - Viðlegupláss minni báta
Rætt um að smábátar fari stækkandi og hvort þurfi að bæta við aðstöðu við flotbryggju. Starfsmönnum falið að yfirfara festur.
9. 200705114 - Önnur mál
Rætt um merkingar á hafnarsvæðinu og á bryggjum. Starfsmönnum falið að merkja bryggjur og setja upp skilti sem benda á að höfnin er athafnasvæði og almenn umferð takmörkuð.
Rætt um vigtarpall, ástand vigtarskúrs og staðsetningu til framtíðar.
Lögð fram rekstrarstaða hafnarinnar fyrstu sjö mánuði ársins.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.


