Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 103
Fundur 103
Fundur hafnarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 19. maí 2008 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgeir Gunnarsson, Halldór Tjörvi Einarsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG), Árni Rúnar Þorvaldsson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200805066 - Ársreikningar Hafnarsjóðs
Ásta H. Guðmundsdóttir gerði grein fyrir niðurstöðum ársreiknings. Samkvæmt rekstrarreikningi námu rekstrartekjur hafnarinnar 95,5 milljónum króna. Rekstrargjöld voru alls 78,4 miljónir króna, fjármunatekjur og fjármagnsgjöld neikvæð um 5,7 miljónir króna. Afgangur ársins er því jákvæður um 11,4 miljónir króna. Heildareignir samkvæmt ársreikningi hafnarinnar voru 217.064 milljónir króna. Eigið fé samkvæmt ársreikningi var 112.273 milljónir króna. Handbært fé frá rekstri var 28 miljónir króna.
Framlagðir reikningar samþykktir.
2. 200804083 - Endurvigtunarleyfi - umsókn Bestfisks
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
3. 200805065 - Ráðning verkstjóra á tækni- og umhverfissviði
Haukur Ingi gerði grein fyrir þeim fimm umsækjendum sem sóttu um stöðu verkstjóra sem verður yfirmaður áhaldahúss, hafnarinnar og veitnanna. Eftir að hafa metið umsóknir er það tillaga framkvstj. tækni- og umhverfissviðs að ráða Birgi Árnason sem verkstjóra á tækni- og umhverfissviði. Birgir er byggingarmeistari að mennt og hefur mikla reynslu af verklegum framkvæmdum. Einnig hefur hann reynslu af rekstri fyrirtækis. Hann býr yfir mikilli reynslu á stjórnun starfsmanna.
Hafnarstjórn samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti.
4. 200804073 - Dýpkun í Hornafjarðarhöfn
Hjalti gerði grein fyrir framvindu við dælingu. Mæling var gerð 19. maí en niðurstöður liggja ekki fyrir. Hjalti sagði frá samskiptum sínum við framkvmdastjóra Björgunar sem hyggst koma með gröfu til að moka föstu efni úr höfninni.
5. 200804075 - Starfsmannamál
Hjalti gerði grein fyrir starfsmannamálum.
6. 200705114 - Önnur mál
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13.20


