Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 99
99. fundur
Fundur í hafnarstjórn Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 24. janúar 2008 og hófst hann kl. 12
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgeir Gunnarsson, Halldór Tjörvi Einarsson, Guðrún Ingimundardóttir, Páll Guðmundsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Hjalti Þór Vignisson (HÞV), Sigfús Harðarson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
1. 200801058 - Skírteini hafnsögumanns
Lagt fram bréf dags. 24. janúar 2008, þar sem sótt er um skírteini fyrir hafnsögumenn hjá Hornafjarðarhöfn. Rætt um reglugerð sem gildir um þessi mál og þá kröfu sem þar er sett fram um námskeið og fleira.
Undir þessum lið var rætt um hugmyndir um samrekstur hafnarinnar, áhaldahúss og veitanna. Haukur Ingi gerði grein fyrir vinnu sem fram hefur farið að undanförnu og taldi sð hægt verði að leggja fram tillögur á næsta fundi hafnarstjórnar. Hafnarstjórn leggur áherslu á að gætt yrði fulls samráðs við hafnarstjórn um þetta mál.
2. 200705114 - Önnur mál
(Sigfús mætti á fundinn kl. 12.15)
Lögð fram gjaldskrá sem hefur einungis verið breytt með tilliti til vísitölubreytinga. Hafnarstjórn samþykkir að gjaldskráin taki breytingum samkvæmt vísitölu um hver áramót.
Rætt um förgun á Hedda frænda. Páll sagði frá því að 50 tonna trébátur hafi verið brenndur um áramót á Húsavík. Sagðist Páll hafa leitað eftir upplýsingum um hvernig leyfi var fengið fyrir brennunni en ekki enn fengið svör ennþá. Hafnarstjórn óskar eftir að haft verði samband við formann Hafnasambandsins um þessi mál.
Rætt um hugmynd útibú Siglingastofnunar á Höfn. Hjalti gerði grein fyrir samtölum sínum við starfsmenn Samgönguráðuneytisins.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12.40


