Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 98
98. fundur
98. fundur hafnarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, föstudaginn 21. desember 2007 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgeir Gunnarsson, Halldór Tjörvi Einarsson, Páll Guðmundsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson, Sigfús Harðarson, Haukur Ingi Einarsson (HIE),
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200712042 - Strand Axels
Sigfús gerði grein fyrir atburðarrás vegna strands Axels og sjóprófum vegna þess. Í ljósi umræðu í fjölmiðlun undanfarna daga um þær staðhæfingar skipstjóra Axels að hafnsögumaður hafi gefið honum ranga stefnu frá Hornafjarðarósi vill Hafnarstjórn benda á að öll gögn og upplýsingar um málið benda til þess að hafnsögumaður hafi veitt skipstjóra allar þær leiðbeiningar sem þurfti til að sigla Axel rétta leið frá Hornafjarðarósi. Auk þess blasti við skipstjóranum á siglingakortum að hann hafi villst af leið. Ennfremur er greinilegt að skipstjórinn hafi algjörlega gleymt að fylgjast með ljósum frá Hvanneyjarvita. Hafnarstjórn undirstrikar því að ábyrgðin er eingöngu og alfarið á herðum skipstjóra Axels. Að varpa ábyrgð yfir á hafnsögumann þegar um vítavert gáleysi skipstjórans er að ræða er merki um ábyrgðarleysi.
2. 200705098 - Álaugareyjarbryggja
Lögð fram fundargerð frá opnun tilboða í verkið ?Hornafjörður Álaugareyjarbryggja stálþil?. Fjögur tilboð bárust og niðurstaðan er eftirfarandi:
1. Íslenska Gámafélagið ehf. 63.999.922(90,9%)
2. Guðlaugur Einarsson ehf 53.374.931 (75,8%)
3. Hagtak hf 64.425.000(91,5%)
4. Ísar ehf. 59.776.066(84,9%)
Hafnarstjórn lagði mikla áherslu á að vandað verði til samningsgerðarinnar og að tímaáætlanir stæðust. Við undirskrift samnings liggi fyrir verkáætlun og greinagóðar upplýsingar um efnahag bjóðendans og verktryggingar.
Hafnarstjórn samþykkir að fela Siglingastofnun að ganga til samninga við lægstbjóðenda.
3. 200705114 - Önnur mál
Ásgeir spurði um dælingu og hvenær ætti að hefjast handa. Hjalti upplýsti að það verði ekki fyrr en á nýju ári en dælingarbúnaður sé að verða tilbúinn til notkunar.
Hjalti upplýsti um stöðu í viðræðum um stofnun útibús Siglingastofnunar á Höfn.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.


