Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 95
95. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í Ráðhúsi föstudaginn 17. ágúst 2007 kl. 12:00.
Mættir voru: Reynir Arnarson, formaður, Ásgeir Gunnarsson, Halldór Tjörvi Einarsson og Páll Guðmundsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson og Ólafur Einir Einarsson.
1. Dæling
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum við Siglingastofnun um dælingu.
Rætt um uppgröft í höfninni. Starfsmönnum falið að gera tillögur að verklýsingu og leggja fyrir á næsta fundi.
2. Framkvæmdir
Reynir gerði grein fyrir undirbúningi vegna Álaugareyjarbryggju. Hafnarstjórn leggur til að framkvæmdir hefjist í mars. Hafnarstjórn leggur áherslu á að fá útboðsgögn til skoðunar.
Rætt um kostnaðaráætlun vegna endurbóta á Vogarbryggju. Samþykkt að kaupa efni í bryggjuna á þessu ári en stefnt að framkvæma verkið á næsta fjárhagsári.
Lögð fram kostnaðaráætlun vegna stækkunar á upptöku fyrir smábáta. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að leita eftir tilboðum í verkið. Stefnt að verklokum þann 30. október.
Rætt um frágang við Bátstangabryggju. Starfsmönnum falið að gera tillögu að frágangi.
3. Hafnafundur á Ísafirði
Hafnarstjórn er sammála um að formaður hafnarstjórnar og hafnarstjóri sæki fundinn f.h. hafnarinnar.
4. Kynnisferð um hafnir á Austurlandi
Stefnt að ferð um mánaðarmótin september október
5. Önnur mál
· Umræður sköpuðust um framtíð dæluprammans Soffíu. Einnig rætt um Hedda frænda og kostnað hafna við förgun skipa.
Fundi slitið kl. 13.40


