Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 90
90. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 19. mars kl. 17:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson, formaður, Ásgeir Gunnarsson, Halldór Tjörvi Einarsson, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir og Páll Guðmundsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Til kynningar.
2. Samningur við Gáma- og tækjaleiguna
Hjalti og Reynir gerðu grein fyrir verkfundi með fulltrúum Gáma- og tækjaleigunnar.
Hafnarstjórn er sammála um að skrifað verði undir samning við Gáma- og tækjaleiguna í samræmi við útboð sem fram fór sl. vor. Hafnarstjórn leggur áherslu á að samningurinn sé í samræmi við útboðsgögn. Hafnarstjórn bendir á að nöfn tengiliða þurfa að vera í samningnum og að verktrygging þarf að vera fyrir hendi af hálfu verktaka.
3. Önnur mál
· Rætt um dýpkun við Bátstangabryggju og nauðsyn þess að klára hana. Jafnframt rætt um uppsetningu á ljósastaurum og lagfæringar á vegi.
Fundi slitið kl. 18.00


