Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 88
88. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss föstudaginn 9. febrúar kl. 10:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir og Páll Guðmundsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson og Haukur Ingi Einarsson. Sigurður Áss Grétarsson og Jóhann Þór Sigurðsson, frá Siglingastofnun, mættu á fundinn kl. 10.20.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Erindi frá bæjarráði
· Samgöngunefnd Alþingis, bréf dags. 17. janúar 2007, ósk um umsögn á frumvarpi til hafnarlaga 366. mál , gjaldskrár, neyðarhafnir, EES-reglur o.fl. , þingskjal á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/133/s/0398.html.
Umræður sköpuðust um styrkjaákvæði núgildandi hafnarlaga.
· Siglingastofnun, bréf dags. 22. desember 2007, úttekt á slysavörnum í höfnum.
Hafnsögumönnum falið að gera viðeigandi úrbætur.
3. Námskeið fyrir verndarfulltrúa hafna og hafnargæslumenn
Vísað til starfsmanna.
4. Dýpkun
Mikil umræða skapaðist um dýpkun. Rætt um kjör sjómanna um borð, framkvæmd dælingar og samskipti við verktaka og tryggingarmál verktaka. Fulltrúar Siglingastofnunar gerðu grein fyrir lögfræðilegum álitaefnum við gerð samningsins.
Hafnarstjórn er samála um að ganga til samninga við Gáma- og tækjaleiguna um dælingu og felur hafnarstjóra að skrifa undir samninginn. Hafnarstjórn leggur þunga áherslu á að kjör starfsmanna um borð séu ekki lakari en íslenskir kjarasamningar segi til um. Ennfremur telur hafnarstjórn að forgangsmál sé að koma samskiptamálum í betra lag og að framkvæmdin verði samkvæmt útboðsgögnum. Auk þess telur hafnarstjórn mikilvægt að kannaðir séu kostir þess að losa efni suður yfir Austurfjöru.
5. Framkvæmdir
Sigurður Áss fór yfir hugmyndir um byggingu stálþils í framhaldi af Álaugareyjarbryggju. Taldi hann ýmsa ókosti við að staðsetja bryggju á þessum stað ef ekki er á sama tíma farið í endurbætur á Álaugareyjarbryggju. Það helgast af því að Álaugareyjarbryggjan er kominn á tíma og hönnunardýpi hennar er 5,5 metrar en gert er ráð fyrir 9 metrum við nýja þilið.
Sigurður taldi tvo kosti vera í stöðunni. Annars vegar að ráðast í endurbætur á Álaugareyjarbryggjunni samhliða byggingu nýs þils. Hins vegar að staðsetja nýja þilið um 20 metra frá Álaugareyjarbryggjunni.
Miklar umræður sköpuðust í kjölfarið.
Hafnarstjórn óskar eftir að Siglingastofnun hanni endurbætur á Álaugareyjarbryggjunni og byggingu nýs stálþils í framhaldi af henni en leggur áherslu á að kostnaðurinn megi ekki fara yfir 200 m.kr. Hafnarstjórn felur einnig hafnarstjóra að óska eftir að fjármunir verði fluttir úr öðrum verkum í þessa framkvæmd.
6. Önnur mál
· Kom fram að fundað verði um verklok við Bátstangabryggju kl. 13.00. Út af stendur að klára stofndýpkun við bryggjuna og ganga frá lýsingu.
· Rætt um lóðamörk við Álaugarey og á Krossey.
Fundi slitið kl. 11.30


