Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 86
86 fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 5. desember kl. 17:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Ásgeir Gunnarsson, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Halldór Tjörvi Einarsson og Páll Guðmundsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson og Sigfús Harðarson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Málefni Austurfjörubryggju
· Bréf Ómars Antonssonar, dags. 6. nóvember 2006.
Hafnarstjórn styður ósk Ómars til samgönguyfirvalda um fjárveitingu til uppbyggingar bryggjunnar. Jafnframt undirstrikar Hafnarstjórn mikilvægi þess að samgönguyfirvöld veiti fjármuni til stofndýpkunar í tengslum við þessar framkvæmdar og nauðsynlegrar viðhaldsdýpkunar.
Einnig var rætt um öryggismál við Austurfjörubryggju. Samkvæmt hafnalögum er eigandi hafnar ábyrgur fyrir því að mannvirki, búnaður og rekstur hafnarinnar og mannvirkja innan hennar séu í samræmi við lög. Siglingastofnun hins vegar hefur eftirlit með öryggisútbúnaði. Kom fram í máli Hjalta að óskað hafi verið eftir úttekt á öryggismálum Austurfjörubryggju.
Páll spurðist fyrir um stál sem var í eigu hafnarinnar en var notað á Austurfjöru. Hafnarstjóra falið að kanna málið. Þá spurðist Páll fyrir um möl í eigu hafnarinnar sem seld hafði verið til Ómars Antonssonar vegna sölu hans á steypuefni. Kom fram að rukkað hafi verið fyrir mölina. Einnig ræddi Páll um rafmagnsmál á Austurfjöru. Hafnarstjóra falið að ræða við Ómar um samstarf um lagningu rafmagns á Austurfjöru.
Sigfús ræddi um aðstöðu við Austurfjörubryggju og lýsti þeirri skoðun að rétt væri að Hornafjarðarhöfn ætti mannvirkið. Taldi hann að ýmislegt væri ábótavant varðandi framkvæmdina. Einnig ræddi hann um að erfitt væri að taka stór skip sem leggjast ættu við Austurfjörubryggju inn á veturna. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og öðrum starfsmönnum hafnarinnar að setja takmörk varðandi komu stórra skipa við Austurfjörubryggju.
3. Framkvæmdir
Rætt um samning við Gáma- og tækjaleiguna um dælingu. Kom fram að ýtt hafi verið á Siglingastofnun og að fundað verði um málið þann 6. desember.
Fyrir fundinum lá minnisblað frá Siglingastofnun, dags. 13. október 2006, vegna sjónskoðunar sjóvarnargarða á Suðurfjöru. Þar kemur fram að ástand garðsins er þannig að ekki er þörf á að ráðast í styrkja hann. Í framhaldinu skapaðist umræða um nauðsynlegar framkvæmdir á vegum hafnarinnar. Hafnarstjórn leggur til að byggð verði ný stálþilsbryggja á svæðinu milli Álaugareyjarbryggju og Ískaja og fjármunir sem áætlaðir hafa verið til byggingu sandfangara á Suðurfjöru verði nýttir í þessa framkvæmd. Rætt um staðsetningu og lengd bryggjunnar. Hafnarstjórn óskar eftir hugmyndum frá Siglingastofnun um slíka bryggju og kostnað við hana. Einnig rætt um Vogarbryggju og nauðsynlegt viðhald á henni. Hafnarstjóra falið að koma óskum Hafnarstjórnar á framfæri við samgönguyfirvöld.
Hjördís Þóra ræddi um ástand bryggjunnar í Óslandi gegnt Melatanga. Í kjölfarið skapaðist umræða um bryggjuna á Melatanga. Hafnarstarfsmönnum falið að meta ástand bryggjanna.
Sigfús ræddi um landbrot í Óslandi. Hann taldi að landbrot sunnanvert við Óslandshraun væri 3-4 metrar á skömmum tíma. Hafnarstjóra falið að ræða við Umhverfisstofnun, Landgræðsluna og Siglingastofnun um málið.
Rætt um upptökubraut fyrir smábáta og mikilvægi þess að breikka hana vegna stærri smábata.
4. Rafmagn á Austurfjöru
Frestað næsta fundar.
5. Gjaldskrármál hafna
· Bréf Hafnasambands sveitarfélaga dags. 27. nóvember 2006.
Umræða skapaðist um uppbyggingu gjaldskrá hafna. Í því sambandi var til dæmis rætt um hvort rétt væri að leggja gjald samkvæmt þyngd en ekki verðmæti. Samþykkt að taka gjaldskrá hafnarinnar til umræðu á næsta fundi.
6. Fjárhagsstaða hafna
· Bréf Hafnasambands sveitarfélaga dags. 27. nóvember 2006.
Til kynningar.
7. Fjárhagsáætlun 2007
Hjalti fór yfir fjárhagsáætlun fyrir höfnina. Áætlun hafnarinnar árið 2007 gerir ráð fyrir að rekstrartekjur lækki um 3 miljónir á milli ára. Skýrist það fyrst og fremst af minnkandi aflagjöldum. Gert er ráð fyrir að sameiginlegur kostnaður aukist um tæpar 9,5 miljónir króna. Gert er ráð fyrir að tekjur Hafnarvogar dragist saman um 1 miljón króna vegna minkandi afla. Rekstrargjöld hækka alls um 14,3 miljónir króna vegna ofangreindra þátta og annarra liða sem breytast einnig líttillega, t.d. laun og launatengd gjöld vegna almennra launabreytinga. Fjármagnsliðir eru neikvæðir um 6,7 miljónir króna. Rekstrarniðurstaða hafnarinnar er áætluð neikvæð um 613 þúsund. Framkvæmdir eru áætlaðar 100 mkr. þ.a. er hlutur hafnarinnar upp á 40 mkr.
Óskað var eftir rekstrarstöðu hafnarinnar á næsta fundi.
8. Önnur mál
· Rætt um dælingu.
Fundi slitið kl. 19.20


