Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 85
85. fundur
Mættir voru: Reynir Arnarson formaður, Ásgeir Gunnarsson, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Halldór Tjörvi Einarsson og Páll Guðmundsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson og Vignir Júlíusson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Til kynningar.
2. Dæling
Rætt um dælingu, t.d. ástæðu útboðs, einingaverð og fleira. Kynnt drög að samningi milli Gáma og tækjaleigunnar og Hornafjarðarhafnar, ódagsett. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að ganga til samninga við Siglingastofnun og Gáma- og tækjaleiguna skv. útboði. Óskað er eftir að hluti af samningsgögnum, sbr. 3. grein í drögum að samningi, verði fylgiskjal sem staðfesti að kjör starfsmanna verktaka fari eftir ákvæðum laga. Mikilvægt er að leiga á rörum í eigu hafnarinnar og vinna starfsmanna hafnarinnar við dælingu verði hluti af samningi. Ennfremur að tryggt verði að uppsagnarákvæði vegna vanefnda sé hluti af samningnum. Hafnarstjórn óskar eftir að sjá endanleg drög að samningi áður en skrifað er undir.
Gerð grein fyrir fundi starfsmanna hafnarinnar og framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs með aðilum sem smíða dælubúnað. Einnig var rætt um nauðsyn þess að mæla strauma innan hafnarinnar til að þekkja betur aðstæður innan hafnar.
3. Samningur við Siglingastofnun
Kynnt ósk Siglingastofnunar um að fá starfsmann Hornafjarðarhafnar sem verktaka í mælingu og fleiri verkefni á vegum stofnunarinnar. Ennfremur var kynntur grunnur að samkomulagi á milli aðila. Rætt um áhrif samningsins á vaktir hafnarstarfsmanna. Hafnarstjóra falið að ganga til samninga við Siglingastofnun. Ennfremur að ræða við starfsmenn hafnarinnar um fyrirkomulag vakta og vinnu á höfninni ef af þessum samningi verður.
4. Framkvæmdir
Gerð grein fyrir ferð starfsmanna hafnarinnar, nefndarmanna í hafnarstjórn og starfsmönnum Siglingastofnunar á Suðurfjörur til að kanna ástand varnargarðs á Suðurfjörum. Ákveðið var að starfsmenn Siglingastofnunar setji saman minnisblað um ástand garðsins. Í framhaldi er hægt að taka ákvörðun um forgangsröðun framkvæmda, þ.e. byggingu varnargarðs út í Einholtskletta eða framkvæmdir innan hafnar.
5. Drög að fjárhagsáætlun
Ásta H. Guðmundsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið og kynnti stöðu Hornafjarðar hafnar þann 16. október. Staðan í rekstri hafnarinnar er jákvæð. Í tengslum við stöðu hafnarinnar var rætt um magn sem dælt hefur verið innan hafnar og við Austurfjörur, um framkvæmdir við Austurfjörur og fleira. Þá kynnti Ásta drög að fjárhagsáætlun.
6. Önnur mál
· Kom fram að áætlaður kostnaður við förgun á Hedda frænda er kr. 1.200.000. Í þessu samhengi var rætt um umræðu á nýliðnu Hafnasambandsþingi um óreiðuskip. Ljóst er að þetta er vandamál víða um land. Samþykkt var á þinginu að hafnasambandið færi í vinnu varðandi þessi mál. Hafnarstjórn er samála um að bíða með förgun þar til þessari vinnu lýkur.
· Lagt fram afrit af bréfi frá Hermanni Stefánssyni, fh. Skinneyjar – Þinganess, dags. 13. okt. 2006, til Fiskistofu þar sem óskað er álits Fiskistofu um fyrirkomulag varðandi vigtun síld og loðnu.
· Hjördís spurðist fyrir um ábyrgð hafnarinnar um öryggismál við bryggju á Austurfjörum. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að ganga úr skugga um þessi mál.
· Rætt um staðsetningu krana í Óslandi. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að ganga frá uppsetningu í samræmi við umræður á fundinum.
Fundi slitið kl. 14.10


