Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 82
82. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss þriðudaginn 1. ágúst 2006 kl. 17:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Þorsteinn Guðmundsson, Halldór Tjörvi Einarsson og Páll Guðmundsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson, Helgi Már Pálsson og Sigfús Harðarson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla
· Minnisblaði Gísla Gíslasonar formanns Hafnasambands sveitarfélaga vegna fundar með sjávarútvegsráðherra 11. apríl 2006 og bréf Gísla til sjávarútvegsráðherra dags. 11. júlí 2006.
Til kynningar.
3. Löndunarkrani
· Bréf Hrollaugs, smábátafélags Hornafjarðar dags. 11.06.2006.
Rætt um kranamál. Kom fram að til stendur að flytja kranann framan við vogina út í Ósland. Endanleg staðsetning er ekki ákveðin en rætt er um austur kant á Óslandsbryggjunni. Starfsmönnum falið að finna endanlega staðsetningu með hlutaðeigandi.
Búið er að setja niður nýjan löndunarkrana nyrst á Krosseyjarkantinum og samþykkt að bíða með flutning á löndunarkrana á “Ískanti”.
4. Fundur með Siglingastofnun
· Minnisblað hafnarstjóra dags. 13. júlí 2006.
Farið yfir dælingu innan hafnar, Grynnslin, fyrirhugaðan sandfangara út í Einholtskletta og viðlegu við Álaugarey.
Hjalti gerði grein fyrir samtali sem hann átti við starfsmenn Siglingastofnunar, þann 1. ágúst varðandi dýpkun innan Hafnar.
Hafnarstjórn er sammála um að rætt verði við Siglingastofnun um hvaða möguleikar eru í stöðinni og þeir kynntir á næsta fundi.
5. Hafnasambandsþing á Hornafirði 12. og 13. október 2006
· Tölvubréf Gísla Gíslasonar dags 14. júlí 2006.
Hjalti gerði grein fyrir því að hann hittir starfsmenn Sambands íslenskra sveitarfélaga í næstu viku vegna undirbúnings hafnasambandsþingsins.
6. Önnur mál
Helgi gerði grein fyrir stöðu mála varðandi Bátstangabryggju.
Sigfús spurðist fyrir um efnistöku í landi sveitarfélagsins á Austurfjörum. Hafnarstjóra falið að koma málum í fastar skorður.
Fundi slitið kl. 18:10


