Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 83
83. fundur
Mætt voru: Reynir Arnarsson formaður, Ásgeir Gunnarsson, Árni Þorvaldsson, Halldór Tjörvi Einarsson og Páll Guðmundsson.
Einnig Hjalti Þór Vignisson, Helgi Már Pálsson og Sigfús Harðarson.
1. Dýpkun innan hafnar
Sigfús gerði grein fyrir dýpkun innan hafnar og við Austurfjöru sem fram fór í byrjun mánaðarins. Ágætlega gekk að dæla og dælt var um 6.000 rúmmetrum innan hafnar og 1.600 rúmmetrum við Austurfjöru.
Rætt var um framhald verksins, losunarsvæði og verklag. Starfsmönnum falið að skoða þessi mál í samræmi við umræður á fundinum og koma með tillögur fyrir næsta fund. Lögð verði áhersla á dælingu innan hafnar.
2. Framkvæmdir
Helgi Már gerði grein fyrir framvindu við Bátstangabryggju en búið er að reka niður innri stauraröð. Greiddar hafa verið samtals um 33,2 mkr. eða 77% verksins. Gerð verður grein fyrir töfum vegna framkvæmdarinnar á næsta fundi.
Væntanlega verður fljótlega farið í frágang á rotþró innst í höfninni og frágangi á svæðinu í framhaldi af því.
Farið verður yfir framkvæmdir ársins á næsta fundi og þá verði einnig lagðar fram hugmyndir um kostnað vegna viðgerða á staurum í Óslandi og hvernig staðið skuli að förgun á Hedda frænda.
3. Hafnasambandsþing 2006
Kynnt var dagskrá vegna Hafnarsambandsþingsins 12 og 13 október n.k. Á næsta fundi verður gengið frá starfsmönnum, fulltrúum og tilhögun skoðunarferðar.
4. Önnur mál
Páll skýrði frá áhuga utanaðkomandi aðila um að landa afla hér á Höfn ef mannskapur væri til staðar til að landa úr bátunum. Hafnarstjóra falið að gera tillögur fyrir næsta fund.
Fundi slitið 18:30
Reynir Arnarsson Hjalti Þór Vignisson
Ásgeir Gunnarsson Helgi Már Pálsson
Árni Þorvaldsson Sigfús Harðarson
Halldór Tjörvi Einarsson
Páll Guðmundsson.
Fundi slitið 18:30


