Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 52
52. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 26. janúar 2004 kl. 16:00.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Reynir Arnarsson, Ásgeir Gunnarsson, Halldór Tjörvi Einarsson, Sigurður Ólafsson, Albert Eymundsson, Sigfús Harðarson, og Helgi Már Pálsson. Einnig gestir fundarins Gísli Viggósson og Per Bruun.
1. Ýmis málefni Hornafjarðarhafnar
Gísli Viggósson og Per Bruun gerðu grein fyrir þeim möguleikum sem fyrir hendi eru vegna dælingar á innsiglingarrennu á Grynnslunum. Fyrr í dag var haldinn fundur með Guðmundi Olgeirssyni skipstjóra á Ásgrími Halldórssyni frá Skinney Þinganesi þar sem þessi mál voru rædd. Gerð var grein fyrir möguleikum á verktaka og verktíma, en miðað er við að fara í þessa framkvæmd í byrjun júní. Hugsanlegt er að um samningsverk verði að ræða. Rætt var um hvort staðsetning rennunar yrði höfð vestar en áður var samþykkt og ákveðið að leita álits skipstjóranna á Ásgrími Halldórssyni og Jónu Eðvalds. Í tengslum við framkvæmdina verða einnig settar upp merkingar á rennunni.
Fundarmenn voru sammála þessum framgangsmáta.
Gísli ræddi um mismun á flóðhæð innan og utan við Ósinn og nýtt forrit um stöðugleika skipa.
Gísli ræddi um fyrirhugaða ráðstefnu sem halda á í byrjun júní á næsta ári hér á Höfn. Lögð verður áhersla á framkvæmdir og rannsóknir við Ósinn og Jökulsárlón þar sem gengið er út frá samspili sjávar, náttúru og mannsins. Undirbúningur er þegar hafinn með Ara Þorsteinssyni í Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum.
2. Önnur mál
Engin
Fundi slitið 17:45


