Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 80
80. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss miðvikudaginn 24. maí 2006, kl. 18:00.
Mætt voru: Páll Guðmundsson formaður, Ásgeir Gunnarsson, Reynir Arnarsson, Björn Emil Traustason og Halldór Tjörvi. Sömuleiðis Albert Eymundsson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Samningur við LitlaHorn ehf.
Farið var yfir lokadrög að samningi milli Hornafjarðarhafnar og Litla-Horns ehf. og samþykkt að heimila hafnarstjóra að undirrita hann.
3. Kranamál
Samþykkt að kaupa krana samkvæmt tilboði frá Framtaki kr. 2.295.000- án vsk. Samþykkt að hann verði staðsettur í króknum á Krosseyjarbakknum fyrir framan sláturhúsið. Jafnframt var samþykkt að núverandi krani á ískæja verði fluttur á sama svæði og krani á Vogarbryggju verði fluttur á austanverða Óslandsbryggju.
4. Önnur mál
Þar sem þetta er síðasti hafnarstjórnarfundur sem hafnarstjóri situr þakkaði hann öllum stjórnarmönnum fyrir samstarfið og framlag þeirra í rekstri og uppbyggingu hafnarinnar. Sömuleiðis þakkaði hann fyrrverandi formanni Ara Jónssyni sem í desember sl. óskaði eftir að vera leystur undan störfum í hafnarstjórn. Hafnarstjórnarmenn þökkuðu sömuleiðis hafnarstjóra fyrir samstarfið.


