Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 79
79. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss miðvikudaginn 10. maí 2006, kl. 20:00.
Mætt voru: Páll Guðmundsson formaður, Ásgeir Gunnarsson, Friðrik Ingvaldsson, Björn Emil Traustason og Halldór Tjörvi. Sömuleiðis starfsmenn, Albert Eymundsson, Helgi Már Pálsson og Sigfús Harðarson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Ársreikningur
Ársreikningar fyrir árið 2005 voru kynntir. Helstu lykiltölur eru að rekstrartekjur eru um 97.647 þkr., rekstrarkostnaður er um 75.650 þkr, rekstrarhagnaður 21.998 þkr og hagnaður ársins er um 17.083 þkr þegar tekið hefur verið tillit til fjármagnsgjalda.
Í lok ársins 2005 eru eignir hafnarinnar um 203.142 þkr. og eigið fé og skuldir um 203.142 þkr.
Friðrik gagnrýnir að hafnarmannvirki skuli vera afskrifuð í ársreikningum sem nemur nú um 4.114 þkr.
Hafnarstjórn samþykkir framlagða reikninga samhljóða.
3. Önnur mál
Kynntur var samningur um hafnaraðstöðu á Austurfjörum milli Hornafjarðarhafnar og Litla Horns ehf.
Skip frá Gáma- og tækjaleiga Austurlands er væntanlegt í lok mánaðarins og mun þá dæla um 5.000 rúmmetrum innan hafnarinnar og mun síðan koma aftur til verksins seinna í sumar.
Sigfús gerði grein fyrir dælingu á Austurfjöru. Hann sagði að skip Björgunar, Perlan væri væntanleg hingað og til stæði að hún myndi dæla rás fyrir nýjum rafstreng. Til greina kæmi að hún myndi aðstoða við dælingu á Austurfjörum.
Páll gerði grein fyrir athugun hans og Sigfúsar á staðsetningu á nýjum löndunarkrana. Tveir staðir koma til greina, syðst á Krosseyjarbryggju, “Ískæinn” og nyrst á Krosseyjarbryggjunni við “Sláturhúshornið”.
Samþykkt að skoða kaup á nýjum löndunarkrana.
Helgi Már gerði grein fyrir framvindu við Bátstangabryggju.
Fundi slitið kl. 21:15


