Hafnarstjórn
fundargerð Hafnarstjórnar
36. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 8. apríl, kl. 20:00.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Hermann Stefánsson, Erlingur Kristinn Guðmundsson, Björn E. Traustason, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Reynir Arnarson, Sigfús Harðarson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Ari Jónsson setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargð síðasta fundar
Fundargerð síðasta fundar hafnarstjórnar 4. mars 2002. Engar athugsemdir.
2. Ársreikningur 2001
Albert fór yfir ársreikning 2001 þar kom fram að hagnaður fyrir fjármagnslið nam rúmum 12,8 millj. kr., fjármagnsliðir námu rúmum - 2,5, hagnaður ársins nam tæpum 10,3 millj. kr.. Stofnframkvæmdir námu 64,1 millj. kr. mótframlag ríkis kr. 41,9 millj. kr. mismunur 22,2 millj. kr. Peningaleg staða og skuldbindingar –24,1 millj.kr. Hafnarsjórn samþykkir ársreikning. Ábending kom fram um að lagfæra bls. 5 fjárhagsáætlun en þar kom fram misræmi milli uppsetningu á fjárhagsáætlun og ársreikning. Töluverður árangur náðist í hagræðingu í rekstri hafnarinnar m.a. launaútgjöldum.
3. Drög að nýjum lögum Hafnasambands sveitarfélaga
Ari kynnti málið og sagði þetta fyrstu drög.
4. Staða verka
Albert kynnti málið og sagði að smábátahöfnin væri langt komin en ljóst er að meira magn af grjóti þarf sem leiðir til kostnaðarauka. Reynir hefur áhyggjur af lokafrágangi verksins og dýpkun verktaka við verkið. Hermann spyr hvenær verklok séu áætluð á smábátahöfn og leiðigarð við Mikley. Samþykkt að taka fyrir stöðu verka og dælingapan á næsta fundi.
Friðþór Harðarsson mætti kl 20:56.
5. Úttekt D&T á starfsemi Hornafjarðarhafnar
Albert kynnti málið og upplýsti að vinna væri á lokastigi en gögn hafa ekki borist málinu frestað til næsta fundar.
6. Önnur mál
· Hafnarstjóri kynnti bréf frá Unnsteini Guðmundssyni um tjónakröfu vegna Ugga SF 47. Hafnarstjóra falið að skoða málið.
· Björn spurði um yfirborð á þekju við Skinney-Þinganes og taldi nauðsynlegt að lagfæra hana.
· Hjördís leggur til að ferjubryggjan í Óslandi verði rifin.
· Ari vakti máls á samþykkt sem gerð var fyrir 10 árum varðandi sameiginlega björgunaræfingu við Hornafjarðarós. Albert upplýsti að hann væri búinn að skrifa almannavarnanefnd bréf varðandi þetta mál. Ari lagði mikla áherslu á að málinu sér fylgt eftir.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundi slitið kl.21:40
Ari Jónsson Albert Eymundsson
Friðþór Harðarson Ásta H. Guðmundsdóttir
Hermann Stefánsson Sigfús Harðarson
Reynir Arnarson
Erlingur Kristinn Guðmundsson
Björn E Traustason
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir


