Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 77
77. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 24. apríl 2006, kl. 17:00.
Mættir voru: Páll Guðmundsson formaður, Ásgeir Gunnarsson, Reynir Arnarson, Björn Emil Traustason og Halldór Tjörvi. Sömuleiðis starfsmenn, Albert Eymundsson, Sigfús Harðarson, og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Ársreikningur 2005
Til kynningar
3. Tilboð í dælingu
Kynntar voru niðurstöður tilboðs vegna viðhalds- og stofndýpkunar í Hornafjarðarhöfn.
Þrír aðilar skiluðu tilboðum og var tilboði fráGáma- og tækjaleigu Austurlands kr. 41.900.000,- ( 81,7 % ) það eina sem var innan ákvæða í útboðsgögnum. Siglingastofnun hefur í bréfi dags. 21.03. 2006 lagt til að tilboðinu verði tekið og er hafnarstjórn sammála því. Viðræður hafa verið við lægstbjóðanda og fyrirhugað er að ganga frá samning við hann n.k. miðvikudag.
4. Aðstaða á Austurfjörum
Lagðar voru fram teikningar af staðsetningu viðlegu á Austurfjöru sem hönnuð er af Siglingastofnun og kynntar tillögur um lóð fyrir efnislagera við mannvirkið. Hafnarstjórn samþykkir teikninguna og tillöguna fyrir sitt leiti.
Samkvæmt gögnum er gert ráð fyrir að dæla þurfi um 21.000 rúmmetrum af um 7.000 fermetra svæði. Ómar gerir ráð fyrir að vinnu við bryggjuna ljúki seinni hluta næsta mánaðar og því er nauðsynlegt að hafist verði handa sem fyrst við dælingu á svæðinu.
5. Bréf frá Rannsóknarnefnd sjóslysa
Til kynningar.
Rætt var um siglingarhraða innan hafnar og samþykkt að senda öllum hlutaðeigandi bréf vegna málsins.
6. Best-Fiski ehf
Kynnt var bréf frá Best-Fisk ehf, dags. 31. mars s.l. þar sem óskað er eftir að settur verði upp löndunarkrani á Óslandsbryggjuna.
Samþykkt að formaður hafnarstjórnar og yfirhafnarvörður geri nýjar tillögur að staðsetningu á löndunarkrönum.
7. Varnir gegn mengun sjávar ( drög að reglugerð )
Til kynningar
8. Önnur mál
Formaður benti á að ganga þurfi frá svæðinu við Óslandsbryggju
Reynir spurðist fyrir um grjótvörn við Akurey og viðlegupláss fyrir björgunarskipið Ingibjörgu.
Fundi slitið kl. 18:40


