Hafnarstjórn
Fundargerð Hafnarstjórnar
37. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 6. maí, kl. 20:00.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Hermann Stefánsson, Erlingur Kristinn Guðmundsson, Friðþór Harðarsson, Reynir Arnarson, Albert Eymundsson, Sigfús Harðarson, og Helgi Már Pálsson.
Ari Jónsson setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargð síðasta fundar
Fundargerð síðasta fundar hafnarstjórnar 8. apríl 2002. Engar athugsemdir.
2. Staða verka
Helgi Már fór yfir stöðu verka vegna leiðigarða og við smábátahöfn. Framkvæmdum við smábátahöfn er því sem næst lokið og vinnu við leiðigarða miðar vel áfram. Áformað er að því verki ljúki upp úr miðjum mánuði.
Rætt var um uppgjör vegna smábátahafnar, dýpkun á því svæði, frágang á grjótgarðinum við Akurey og kostnað við upptökubraut.
Dreift var hugmyndum að frágangi við umhverfi smábátahafnarinnar og þær ræddar.
Lögð var áhersla á að lokið væri við upptökubraut og snyrtilega gengið frá á svæðinu í kring. Gerðar verði tillögur að frágangi við svæðið og lagðar fyrir næsta fund.
3. Önnur mál
· Albert gerði grein fyrir stöðu D&T vegna úttektar á höfninni.
· Albert gerði grein fyrir máli Unnsteins Guðmundssonar, vegna Ugga SF 47. Ekki verða greiddar bætur vegna tjónsins. Því var beint til hafnarstarfsmanna að merkja betur dælulögnina.
· Hermann spurðist fyrir um dæluplan innan hafnar og rætt var um dýpi innan hafnar. Samþykkt var að fá upplýsingar frá Siglingastofnun um mesta mögulega dýpi við bryggjukanta og að lagt yrði fyrir næsta fund endanlegt dýpkunarplan.
· Sigfús vakti athygli á þörf á björgunarvestum í Björn Lóðs.
· Friðþór vakti athygli á þörf fyrir stiga við kant á gömlu smábátaaðstöðinni.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundi slitið kl.21:30
Ari Jónsson Albert Eymundsson
Friðþór Harðarson Helgi Már Pálsson
Hermann Stefánsson Sigfús Harðarson
Reynir Arnarson
Erlingur Kristinn Guðmundsson


