Hafnarstjórn
Fundargerð Hafnarstjórnar
40. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 4. nóvember, kl. 20:00.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Axel Jónsson, Reynir Arnarsson, Ásgeir Gunnarsson, Albert Eymundsson, Sigfús Harðarsson og Helgi Már Pálsson.
Ari Jónsson setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 39. fundur, 30. september 2002.
Albert gerði grein fyrir hæfniskröfum leiðsögumanna sbr. lög frá 34/1993.
Engar aðrar athugsemdir.
Starfshópur vegna björgunaræfingar 28. október 2002.
Til kynningar
Stjórn Hafnasambands sveitarfélaga 252. – 255. fundur
Til kynningar.
2. Skipun í starfshóp vegna björgunaræfingar í höfninni og innsiglingu
Bréf almannavarnarnefndar dags. 22. október s.l. þar sem óskað er eftir að hafnarstjórn skipi fulltrúa fyrir björgunaræfingu sem fyrirhuguð er við Hornafjarðarhöfn og innsiglingu. Samþykkt er að Sigfús og Axel verði fulltrúar nefndarinnar.
3. Yfirlitsskýrsla um sjóvarnir
Erindi frá Siglingastofnun dags. 24. október s.l. um endurskoðaða útgáfu skýrslu um sjóvarnir.
Til kynningar.
4. Skráningargjöld
Albert kynnti álit fjárhagsnefndar Hafnasambands sveitarfélaga á ársfundi sambandsins 10.-11. október s.l.um skráningargjald afla. Meðfylgjandi er fundarskjal fjárhagsnefndar, nr. 18, ódagsett.
Á fundi hafnarnefndar 9. september s.l. var tekið fyrir erindi frá fiskimjölsverksmiðjunni í Óslandi þar sem óskað var eftir að fella niður skráningargjald á afla.
Samþykkt var að hafnarstjóri geri tillögur að svari við erindi verksmiðjunnar.
5. Sammenslutningen af danske havne
Bréf dags. 3. október s.l. frá Hafnarsambandi sveitarfélaga um samþykktir Ráðherraráðs Evrópusambandsins um markaðsaðgang fyrir þjónustu við hafnir
Til kynningar.
6. Önnur mál
Skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands : „Samkeppnisaðstaða land- og sjóflutninga“ sem dreift var með fundargögnum.
Til kynningar
Albert gerði grein fyrir heimsókn Fiskistofu hér á Höfn þar sem rædd voru m.a. samskipti stofnunarinnar við höfnina.
Hann tilkynnti frestun á heimsókn starfsmanns ráðuneytisins vegna framhaldsvinnu um úttekt á rekstri hafnarinnar og einnig gerði hann og Ari grein fyrir afgreiðslum á síðasta hafnarsambandsþingi, s.s. umhverfismálum, gjaldskrárhækkun um 7,7 %, slysavörnum í höfnum, slysavarnarnámskeið fyrir hafnarstarfsmenn, ný hafnarlög og samræmd samgönguáætlun o.fl.
Helgi Már kynnti síðustu mælingu á Grynnslunum og samanburð á fyrri mælingum á þessu ári sem sýna jákvæðar breytingar á dýpi.
Reynir spurðist fyrir um endurbætur á Krosseyjarbryggju.
Ásgeir spurðist fyrir um viðgerðir á Soffíu. Lágmarksviðgerðum lýkur væntanlega í vikunni.
Fundi slitið kl.22:10
Ari Jónsson Albert Eymundsson
Reynir Arnarsson Helgi Már Pálsson
Axel Jónsson Sigfús Harðarsson
Ásgeir Gunnarsson


