Hafnarstjórn
Fundargerð Hafnarstjórnar 43
43. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 10. febrúar, kl. 16:00.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Axel Jónsson, Ásgeir Gunnarsson, Halldór Tjörvi Einarsson, Friðrik Ingvaldsson, Albert Eymundsson, Sigfús Harðarsson, Vignir Júlíusson og Helgi Már Pálsson. Einnig gestir fundarins Gísli Viggósson og Per Bruun.
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 22. fundur 10. desember 2002.
Engar athugasemdir
2. Frekari rannsóknir og framkvæmdir við Hornafjarðarós
Gísli Viggósson og Per Bruun gerðu grein fyrir breytingum á Grynnslunum og fyrirhuguðum rannsóknum og framkvæmdum á næstu árum.
Ljóst er að framkvæmdir við Þinganesgarð eru að skila þeim árangri sem stefnt var að og þegar niðurstöður fyrirhugaðra tilraunahola á Grynnslunum liggja fyrir nú í ár mun endanleg lega rennurnar gegnum þau verða ákveðin.
Stefnt er að því að grafa þessar holur í júní n.k. og verja um 15 mkr í þá framkvæmd.
Fyrir í dag var haldinn fundur með aðilum frá Skinney Þinganesi og þessi áform kynnt. Rætt var um að æskilegt væri að halda 8,0 metra dýpi í rennunni miðað við djúpristu 7,4 metrar hjá Ásgrími fullhlöðnum.
Gísli kynnti einnig fyrirhugaðar framkvæmdir og rannsóknir við Jökulsárlón.
3. Dæling
Gerð var grein fyrir hvernig dýpkun miðaði og hvernig vinnu við dýpkun innan hafnar yrði háttað á þessu ári. Lokið er við dælingu við Loðnubryggju og áformað er að fara næst í rennuna milli ytri og innri hafnar og vesturkant Krosseyjarbryggju.
Áætlað er að dæla allt að 25.000 rúmmetrum á þessu ári.
Ýtarlegri upplýsingar og mælingar af höfninni og innsiglingarrennunni verða lagðar fyrir á næsta fundi.
4. Gjaldskrá
Albert gerði grein fyrir málinu og lagði til að beðið væri með gjaldskrárbreytingar til næsta fundar þar sem samræmd gjaldskrá ráðuneytisins liggur ekki fyrir.
5. Reikningar 2002
Útskrift úr bókhaldi lagt fram til kynningar
6. Bréf Siglingastofnunar, fjárveitingar og framkvæmdir 2003
Gísli fór yfir fyrirhugaðar fjárveitingar vegna framkvæmda á þessu ári, alls 26,4 mkr sem ætlaðar eru til viðhaldsdýpkunar innan hafnar, 11,4 mkr og aðgerða á Grynnslunum 15,0 mkr.
Ítrekað var að flýta umhverfismati vegna Faxeyrarhafnar.
7. Erindi Hrollaugs, félags smábátaeiganda á Hornafirði
Hrollaugur, félag smábátaeiganda óskar eftir úrbótum vegna uppsáturs á smábátum innan hafnar.
Starfsmönnum falið að gera tillögu um úrbætur fyrir næsta fund.
8. Umsókn um bláfánann
Erindi frá Hafnarsambandi Sveitarfélaga, dags. 31. janúar s.l. um þátttöku um bláfánann, umhverfisverkefni.
Lagt fram til kynningar.
9. Önnur mál
Friðrik spurðist fyrir um fyrirhugað brotthvarf ruslagáma á hafnarsvæðinu og tók fram að hann væri á móti þessu og taldi þetta afturhvörf.
Fundi slitið 19:00
Ari Jónsson Albert Eymundsson
Axel Jónsson Sigfús Harðarsson
Ásgeir Gunnarsson Helgi Már Pálsson
Haldór Tjörfi Einarsson
Friðrik Ingvaldsson


