Hafnarstjórn
Fundargerð Hafnarstjórnar 45
45. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 7. apríl, kl. 20:00.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Ásgeir Gunnarsson, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Reynir Arnarson, Albert Eymundsson, Sigfús Harðarsson og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 44. fundur 17.mars 2003.
Engar athugasemdir
2. Áætlun um dýpkun innan hafnar
Helgi Már lagði fram kort af höfninni og fór yfir áætlað magn sem þyrfti að dæla til að ná um 7,5 metra lágmarksdýpi á svæðunum við Krosseyjar- og Álaugareyjarbryggju. Samþykkt er að vinna eftir framlögðu korti og því til viðbótar skal dýpi innan snúningssvæða á innri og ytri höfninni vera 7,5 metrar.
Starfsmönnum falið að gera breytingar á gögnunum og senda erindið til Siglingastofnunar. Jafnframt að gera kostnaðar- og framkvæmdaáætlun um frekari dýpkun til samræmis við áðurgreint kort.
3. Rekstraryfirlit hafnarinnar 2002
Albert kynnti rekstraryfirlit fyrir Hornafjarðarhöfn á síðasta ári. Ekki er um endanleg gögn að ræða. Til kynningar.
4. Hlutdeild hafna í veiðigjaldi
· Bréf hafnasambands sveitarfélaga dags. 26. mars 2003
Fundarmenn sammála erindinu.
5. Önnur mál
Erindi frá fjárhags- og fræðslunefnd Hafnasambands sveitarfélaga, dags. 3. apríl s.l. þar sem óskað er eftir hugmyndum og tillögum um efni á væntanlegri heimsíðu. Nefndarmenn fagna erindinu og hvetur þá sem hafa ábendingar um viðkomandi mál að komi því á framfæri við hafnarstjóra.
Erindi frá öryggis- og uhverfisnefnd Hafnasambands sveitarfélaga, dags. 3. apríl s.l. um námskeið í öryggismálum fyrir hafnarstarfsmenn þar sem óskað er eftir upplýsingum um fjölda hugsanlegra þátttakenda. Hafnarstjóra og starfsmönnum falið að svara erindinu.
Sigfús sagði frá æfingu 30. mars s.l. þar sem sviðsett var sjóslys rétt utan við Ósinn.
Skýrsla um æfinguna mun verða kynnt síðar.
Ari óskaði eftir því að nýju hafnarlögunum verði dreift og að þau verði tekin fyrir sem sér dagskrárliður á næsta fundi. Nefndarmenn eru hvattir til að kynni sér þau vandlega.
Fundi slitið 21:45
Ari Jónsson Albert Eymundsson
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir Sigfús Harðarsson
Ásgeir Gunnarsson Helgi Már Pálsson
Reynir Arnarson


