Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 76
76. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss föstudaginn 16. mars 2006, kl. 12:00.
Mættir voru: Páll Guðmundsson formaður, Friðrik Ingvaldsson, Reynir Arnarson og Björn Emil Traustason. Sömuleiðis starfsmenn, Albert Eymundsson, Sigfús Harðarson, og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir
2. Aðstaða á Austurfjörum
Páll gerði grein fyrir viðræðum við Ómar Antonsson, en borist hefur gagntilboð frá honum, tölvupóstur dags. 13. mars.s.l.
Hafnarstjórn er sammála um að leyfa Ómari að byggja viðlegu á Austurfjörum.
Hornafjarðarhöfn mun sjá um stofndælingu á svæðinu í byrjun, áætlað um 10 – 15.000 rm og fá afnot af mannvirkinu í staðinn.
Friðrik gerir fyrirvara um með hvaða hætti verði staðið að dælingu.
Samþykkt er að Litla Horn fái 20.000 fm lóð til afnota.
Hafnarstjóra falið að ljúka við gerð samkomulags sem lagt verði fyrir næsta fund.
Starfsmönnum falið að gera tillögu að gerð skipulags á svæðinu og kynna það á næsta fundi.
3. Friðsæld
Tekist hefur að ná samkomulagi við landeiganda í Dynjanda og byrjað er að keyra efni úr námunni í fyllingu á Bátstangabryggju. Siglingastofnun hefur verið kynnt samkomulagið og gerir ekki athugasemdir við það.
Hafnarstjórn samþykkir samkomulagið með orðalagsbreytingu ( Friðsæld í stað landi Dynjanda ). Björn Emil er á móti.
4. Ársreikningar Hafnasambands sveitarfélaga
Til kynningar
5. Önnur mál
Páll spurðist fyrir um þjónustu til útgerða í vanskilum Páll spurðist fyrir um kaup á eldsneyti fyrir Hornafjarðarhöfn.
Reynir spurðist fyrir um gang mála við Bátstangabryggju og svæðið við Akurey.
Fundi slitið kl. 13:00


