Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 75
75. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 20. febrúar 2006, kl. 17:00. Mætt voru: Páll Guðmundsson formaður, Ásgeir Gunnarsson, Reynir Arnarson og Björn Emil Traustason. Sömuleiðis starfsmenn, Albert Eymundsson, Sigfús Harðarson, og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Aðstaða á Austurfjörum
Páll gerði grein fyrir fundi sem hann og Albert áttu með Ómari Antonssyni vegna losunaraðstöðu innan fjarðar á Austurfjöru. Hafnarstjóra falið að gera tillögu að tilboði miðað við helmings kostnaðarskiptingu og leggja fyrir hafnarstjórn til samþykktar.
3. Útboðsgögn vegna dýpkunar innan hafnar
Farið vara yfir útboðsgögn vegna dælingar innanhafnar sem Siglingastofnun hefur unnið. Gerðar voru smávægilegar athugasemdir við útboðsgögnin og samþykkt að bjóða verkið út og tilboð verði opnuð í mars n.k.
Samþykkt að selja dæluskipið Soffíu ef viðunandi tilboð fæst og að viðhaldsdæling færist frá höfninni.
4. Önnur mál
Albert lagði fram bréf, dags. 13. feb. s.l. frá Siglingastofnun þar sem fram kemur að erindi vegna gerð bryggju á Austurfjöru hafi verið vísað til endurskoðunar á samgönguáætlun. Helgi Már kynnti dýptarmælingu á Grynnslunum Páll spurðist fyrir um malarnám í Friðsæld. Snurða hljóp á þráðinn og unnið er í málinu með aðstoð lögfræðings bæjarins. Hann spurði einnig um málefni Hedda Frænda sem liggur í höfninni út við Ósland.
Fundi slitið kl. 19:10


