Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 74
74. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss fimmtudaginn 9. febrúar 2006, kl. 20:00.
Mætt voru: Páll Guðmundsson formaður, Ásgeir Gunnarsson, Reynir Arnarson, Björn Emil Traustason og Halldór Tjörvi. Sömuleiðis starfsmenn, Albert Eymundsson, Sigfús Harðarson, og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Aðstaða á Austurfjörum
Albert greindi frá því að Hafnarráð vísaði erindi hafnarstjórnar um styrkhæfni á fyrirhugaðri lestunaraðstöðu á Austurfjöru áfram til endurskoðunar á samgönguáætlun en óvissa er um hvort framkvæmdin teljist styrkhæf. Rætt var um hvaða möguleikar væru í stöðinni. Annarsvegar að hafnarsjóður fjármagnaði verkið í heild sinni eða hinsvegar að gefa notandanum leyfi til að reisa mannvirkið á eigin kostnað eða í einkaframkvæmd.
3. Útboðsgögn vegna dýpkunar innan hafnar
Útboðsgögn hafa ekki borist frá Siglingastofnun.
Málinu frestað.
4. Önnur mál
Albert greindi frá fundi sem hann og Helgi Már áttu með fulltrúum Skinneyjar Þinganess vegna væntanlegrar byggingar á frystigeymslu og hafnaraðstöðu henni tengdri.
Reynir spurðist fyrir um efnisnám fyrir Bátstangabryggju. Helgi Már upplýsti að málið væri leyst.
Fundi slitið kl. 22:00


