Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 73
73. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss fimmtudaginn 19. janúar 2006, kl. 13:00
Mætt voru: Reynir Arnarson, Friðþór Harðarson, Ásgeir Gunnarsson, Halldór Tjörvi Einarsson og Sigurður Ólafsson. Sömuleiðis starfsmenn, Albert Eymundsson, Sigfús Harðarson, Vignir Júlíusson og Helgi Már Pálsson. Gestir fundarins voru Gísli Viggósson og Jóhann Þór Sigurðsson frá Siglingastofnun og Páll Guðmundsson.
Reynir Arnarson var kosinn fundarstjóri í forföllum formanna.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Þriggja ára áætlun
Samþykkt.
3. Gjaldskrá 2006 til staðfestingar.
Gjaldskráin hækkar um 3,5% milli ára.
Gjaldskráin samþykkt.
4. Bátstangabryggja – verksamningur
Ekki gerðar athugasemdir við samninginn.
5. Staðsetning þjónustubryggju
Gísli og starfsmenn hafnarinnar fóru yfir hugsanlega staðsetningu og hönnun þjónustubryggju á Austurfjörum. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
6. Útboðsgögn vegna dýpkunar innan hafnar
Farið var yfir drög útboðsgagna vegna dýpkunar innan hafnar sem Siglingastofnun hefur unnið að. Ýmsar athugasemdir komu fram sem leiðréttar verða og drögin kynnt að nýju fyrir hafnarstjórn. Hafnarstjórn er sammála um að verkið verði boðið út.
7. Önnur mál
Starfsmönnum falið að vinna að tillögum um breytingar á siglingaleiðinni um Ósinn við Hleinina.
Fundi slitið kl. 14:40


