Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 71
71. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 29. nóvember 2005, kl. 17:00
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Ásgeir Gunnarsson, Reynir Arnarson og Halldór Tjörvi. Sömuleiðis starfsmenn, Albert Eymundsson, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Fjárhagsáætlun 2006
Ekki eru gerðar neinar breytingar á rekstraráætlun frá síðasta fundi. Áætlunin gerir ráð fyrir framkvæmdum að upphæð 110.740 þús. kr. þar af hlutur hafnarinnar 35.740 þús. kr. Helstu framkvæmdir eru Bátstangabryggja, raflögn og merki í Hvanney/Hlein, bryggja á Austurfjörum og dýpkun innanfjarðar og á Grynnslum.
Hafnarstjórn samþykkir framlagða fjárhagsáætlun og vísar henni áfram til bæjarstjórnar J
afnframt var 3ja ára áætlun lögð fram til kynningar sem gerir ráð fyrir svipuðum tekjum og rekstrarkostnaði og fjárfestingum að upphæð samtals um 250 m.kr. Þar af er hlutur hafnarinnar 119.300 m.kr. Frestað til næsta fundar.
Ásta yfirgaf fundinn.
3. Bryggjuaðstaða á Austurfjörum
Hafnarstjórn samþykkir að byggja viðlegu á innanverðum Austurfjörum til nota fyrir lestun á möl og sandi. Samþykktin byggir á fyrirliggjandi frumtillögum Siglingastofnunar um gerð og stofnkostnað mannvirkisins, viðskiptaáætlun Litla Horns ehf og einnig að framkvæmdin verði samþykkt styrkhæf.
Hafnarstjórn leggur áherslu á að framkvæmdum verði hraðað.
Jafnframt samþykkir hafnarstjórn að gengið verði til samninga við Litlahorn ehf um afnot félagsins að viðlegunni og um önnur samskipti þess og Hornafjarðarhafnar. Fullgerður samningur skal ligga fyrir eigi síðar en kemur til skuldbindinga Hornafjarðarhafnar vegna væntanlegrar framkvæmdar.
4. Uppgjör vegna malarsölu úr Óslandi
Hafnarstjórn samþykkir framlagaðar tillögur formanns og hafnarstjóra vegna tilraunasölu á malarefni. Samkvæmt tillögunni verða tekjur hafnarinnar um 400 þús. kr. fyrir það sem selt hefur verið og áætlað svipað fyrir það sem eftir.
5. Skipulagsmál
Albert upplýsti að fyrirhugaður er fundur með eigendum Skinney / Þinganes. Rætt var um hvort halda ætti fundi með öðrum hagsmunaaðilum. Áfram verður unnið að þessum málum
6. Önnur mál
Engin
Fundi slitið kl. 18:30


