Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 70
70. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss miðvikudaginn 9. nóvember 2005, kl. 20:00
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Ásgeir Gunnarsson, Axel Jónsson, Reynir Arnarson, og Halldór Tjörvi. Sömuleiðis starfsmenn, Albert Eymundsson, Sigfús Harðarson, og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir
2. Endurskoðuð áætlun 2005
Hafnarstjóri kynnti endurskoðaða áætlun hafnarsjóðs. Breytingar eru aðallega þær að rekstartekjur eru um 52,3 mkr og í stað 49,9 mkr áður og rekstrargjöld 22,5 mkr í stað 17,6 mkr.
Hafnarstjórn lýsir ánægju sinni með framlagða endurskoðun á áætlun fyrir árið 2005 og gerir ekki athugasemdir við hana.
3. Fjárhagsáætlun 2006
Albert og Ásta kynnti fyrstu drög af fjárhagsáætlun fyrir árið 2006. Þar er gert ráð fyrir 54,1 mkr í rekstrartekjur og 24,6 mkr í rekstrargjöld. Fjármunatekjur og fjármagnskostnaður er 6,7 mkr og frá rekstri til framkvæmda eru áætlaðar 22,7 mkr
Albert kynnti óskir Siglingarstofnunar vegna framkvæmda næsta árs, en þar er rætt um frestun verkefna fram á árið 2007. Styrkir til framkvæmda frá hinu opinbera verða framlengdir til ársins 2008.
Endanlegri afgreiðslu frestað til næsta fundar sem áætlaður er 28. nóvember n.k.
4. Þjónustubryggja - Bátstangabryggja
Kynntar voru teikningar og drög af útboðsgögnum fyrir nýja þjónustubryggju, Bátstangabryggju í Óslandi. Til stendur að auglýsa útboðið um næstu helgi og tilboðum verði skilað 23. nóvember n.k. Verklok eru áætluð 15. ágúst 2006. Mest allt efni í bryggjuna er komið á staðinn, en þó vantar enn nokkra staura.
Ekki eru gerðar athugasemdir við fyrrnefndar dagsetningar.
5. Dýpkun á Grynnslum
Kynntar voru dýptarmælingar af Grynnslunum, en framkvæmdum við dýpkun er nú lokið í bili. Dælt hefur verið rúmlega 50.000 rúmmetrum. Dýpi í rennunni er um og yfir 8,5 metrar.
Hafnarstjórn fagnar þessum merka áfanga.
6. Dýpkun innanfjarðar
Í framhaldi af dýpkun á Grynnslunum var samið við verktakann um að dýpka innanfjarðar úr innsiglingarrrennnuni. Samtals var dælt um 2.500 rúmmetrum og hugsanlegt er að meiru verði dælt. Soffía hefur dælt um 25.000 rúmmetrum það sem af er þessu ári.
7. Skipulagsmál
Dreift var gildandi deiliskipulagi fyrir iðnaðarsvæðið í Óslandi frá 1989 með áorðnum breytingum og uppfærðum teikningum af hafnarsvæðinu. Rætt var um breytingu á deiliskipulaginu og nýju deiliskipulagi norðan hafnarinnar.
Samþykkt að vinna að þessu máli áfram á næstu fundum.
8. Lestunaraðstaða á Austurfjörum
Gert var grein fyrir viðræðum sem fram hafa farið við þá sem tengjast verkefninu. Í dag er búið að flytja um 3.300 tonn. Starfsmönnum falið að vinna frekar að málinu í samræmi við umræður á fundinum og vera í sambandi við formann þar um.
9. Önnur mál
Engin
Fundi slitið kl. 22:45


