Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 69
69. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 19. september 2005, kl. 20:00
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Ásgeir Gunnarsson og Sigurður Ægir Birgisson. Sömuleiðis starfsmenn, Albert Eymundsson, Sigfús Harðarson, Vignir Júlíussson og Össur Imsland.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir
2. Staða hafnarsjóðs
Hafnarstjóri kynnti stöðu hafnarsjóðs samkvæmt átta mánaða útskrift úr bókhaldi.
3. Staðsetning þjónustubryggju
Kynntar voru þrjár tillögur samkvæmt minnisblaði Siglingarastofnunar. Tillögur þessar voru ræddar og samþykkir hafnarstjórn að unnið yrði eftir tillögu 3 með smávægilegum breytingum samkvæmt ábendingum skipstjórnarmanna. Fyrirliggjandi er kostnaðaráætlun sem hafnarstjórn gerir ráð fyrir að standist. Hafnarstjórn leggur áherslu á að framkvæmd hefjist eins fljótt og kostur er.
4. Dælingar
Hafnarstjóri gerði grein fyrir dælingu á grynnslum. Hafnarstjórn átelur seinagang á framkvæmd verksins og beinir því til hafnarstjóra að vinna að áframhaldandi framkvæmdum sem fyrst. Rædd var dæling innanhafnar og er samkvæmt framkvæmdaráætlun hafnarinnar samþykkt að dæla um 75.000 rúmmetrum. þegar er búið að dæla um 15.000 rúmmetrum, eftir er því að dæla um 60.000 rúmmetrum og skal því lokið fyrir árslok.
5. Samgöngu-/siglingamálaætlun 2005-2008
Siglingarmálaáætlun var kynnt á fundinum.
6. Önnur mál
Hafnarstjóri kynnti frumathugnun á kaupum á nýjum dýpkunarpramma í staðin fyrir Soffíu. Hafnarstjóra ásamt starfsmönnum falið að vinna frekar að málinu fyrir næsta fund hafnarstjórnar.
Kynntar frumhugmyndir að leguaðstöðu við austurfjörur vegna útskipunar á byggingarefni. Hafnarstjórn fagnar áætlunum um sölu á byggingarefni
Hafnarstjóri tilkynnti að á næstunni verði deiliskipulag hafnarinnar endurskoðað samfara endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélgsins.
Hafnarstjóri kynnti væntanlegan hafnafund í Hafnarfirði föstudaginn 30 sept.
Spurt var um stöðu framkvæmdaáætlunar fyrir 2005. Á næsta fundi hafnarstjórnar mun hafnarstjóri gera grein fyrir stöðu framkvæmda.
Fundi slitið kl. 23:00


