Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 66
66. fundur
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 66. fundur
FUNDARGERÐ
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss fimmtudaginn 3. mars 2005, kl. 15:10.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Reynir Arnarson, Ásgeir Gunnarsson. Sömuleiðis starfsmenn, Albert Eymundsson, Sigfús Harðarson, Vignir Júlíusson, Helgi Már Pálsson og gestir frá Siglingastofnun Kristján Helgason og Sigurður Ás Grétarsson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir
2. Framkvæmdir og dýpkun
Kristján gerði grein fyrir niðurstöðum af fundum fyrr í dag með Skinney Þinganes og Ísnet, veiðafæragerð vegna staðsetningar á nýrri netabryggju við Ósland. Gert er ráð fyrir 40 metra bryggju og kostnaður gæti verið um 40,0 mkr. Framkvæmdir gætu hafist í september. Hafnarstjórn felur starfsmönnum í samvinnu við Siglingarstofnun að klára hönnun á bryggjunni og reyna að flýta verkinu eins og kostur er. Sigurður Ás gerði grein fyrir væntanlegri framvindu vegna dýpkunar á Grynnslunum og sagði að verktakinn muni væntanlega koma í maí / júní n.k. til að vinna verkið. Hafnarstjórn leggur mikla áherslu á að verkatakinn komi sem allra fyrst, jafnvel í apríl og dæli þá a.m.k. eina tilraunarholu til að fá reynslu á verkið. Lagðar voru fram dýptarmælingar af Grynnslunum frá febrúar s.l. Endanleg staðsetning innsiglingarrennu verður endurskoðuð áður en byrjað verður á verkinu.
3. Önnur mál
Engin.


