Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 65
65. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss miðvikudaginn 9. febrúar 2005, kl. 20:00.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Reynir Arnarson, Ásgeir Gunnarsson, Friðþór Harðarsson og Halldór Tjörvi Einarsson. Sömuleiðis starfsmenn, Albert Eymundsson og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir
2. Þjónustubryggja vegna netaverkstæðis
Albert og Helgi Már gerðu grein fyrir þeirri vinnu sem farin er á stað, en unnið er áfram að þessu verki í samvinnu við Siglingastofnun. Í dag er verið að skoða tvo möguleika. Starfsmenn Siglingastofnunar eru væntanlegir austur vegna þessa verkefnis á næstu dögum. Lögð er áhersla á að þeir aðilar sem koma til með að nota bryggjuna verði hafðir með í ráðum um staðsetningu hennar.
3. Dæling
Albert gerði grein fyrir málum vegna dýpkunar á Grynnslunum, en vonir standa til að það verk verði unnið í maí n.k. af því fyrirtæki sem samið var við á síðasta ári.
Helgi Már gerði grein fyrir fyrirhugaðri dælingu innan hafnar á þessu ári, skv. bréfi dags. jan. 2005. Gert er ráð fyrir að dýpka um 75.000 rúmmetra og er dýpkun á klöpp þar meðtalin. Þar af er 25.000 rúmmetrar vegna viðhaldsdýpkunar.
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaða dýpkun og fela hafnarstjóra að kynna Siglingastofnun málið.
Ari lagði frm eftirfarandi bókun
Núverandi dæluprammi hafnarinnar er upphaflega smíðaður 1950 og hefur verið í eigu hafnarinnar frá 1985 og verið notaður við dýpkun hennar frá þeim tíma til dagsins í dag. Verði hann notaður öllu lengur þarfnast hann endurbyggingar innan tíðar. Í ljósi þess ítrekar hafnarstjórn fyrri samþykkt sína um að fela hafnarstjóra að gera athugun á hverra kosta er völ í stöðinni.
Bókunin samþykkt.
4. Bréf frá Foss vegna undanþágulista
Albert kynnti bréf frá Foss, dags. 31. janúar s.l. þar sem þeir fallast ekki á þá túlkun sveitarfélagsins um að starfsmenn hafnarinnar verði undanþegnir verkfalli.
Albert falið að leita eftir niðurstöðu við Foss.
Albert kynnti fyrirliggjandi starfsmat hafnarstarfsmanna.
5. Ósk um lagfæringu á lýsingu á hafnarsvæði
Albert kynnti bréf frá Vökli, stéttarfélagi, dags. 24. des. 2004 um að hafnarstjórn beiti sér fyrir að lýsing hafnarinnar verði í lagi. Unnið er við raflagnir á nýju Krosseyjarþekjunni
Ari spurðist fyrir um hvort öryggismál hafnarinnar eru ekki i samræmi við gildandi regligerð. Albert falið að kanna málið.
6. Yfirlitsskýrsla um sjóvarnir
Bréf Siglingastofnunnar dags. 16. desember 2004
Til kynningar
7. Bláfáninn
Bréf Bláfánans á Íslandi dags. 4. janúar 2005
Til kynningar
Fram kom að mikill grútur virðist hafa verið í höfninni og að opnir fráveituskurðir eru á lóð loðnubræðslunnar í Óslandi.
Hafnarstjóra falið að kanna málið
8. Raforkumál
Bréf Rarik dags. 12. janúar 2005
Til kynningar
9. Önnur mál
Albert gerði lauslega grein fyrir bráðabyrgðaruppgjöri á fjárhag hafnarinnar á síðasta ári.
Albert gerði grein fyrir tilboði frá tímaritinu Sjómaðurinn.
Erindinu hafnað
Ari gerði tillögu um að kanna möguleika á að auka rafræna vinnslu varðveislu og miðlun fundargagna hafnarstjórnar. Tillagan samþykkt.
Reynir lagði til að skoðaðir yrðu hagsmuni hafnarinnar gegn meintu samráði olíufélaganna. Tillagan samþykkt.
Friðþór spurðist fyrir um hugsanlegt stæði fyrir björgunarskip sem væntanlegt er til Hafnar. Málið er í skoðun.
Fundi slitið 21:50
Albert Eymundsson
Helgi Már Pálsson
Ari Jónsson
Ásgeir Gunnarsson
Reynir Arnarsson
Halldór Tjörvi Einarsson
Friðþór Harðarsson


