Hafnarstjórn
Fundargerð Hafnarstjórnar 64
64. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 13. desember 2004, kl. 20:00.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Reynir Arnarson, Ásgeir Gunnarsson og Halldór Tjörvi Einarsson. Sömuleiðis starfsmenn, Albert Eymundsson, Helgi Már Pálsson og Sigfús Harðarsson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir
2. Fjárhagsáætlun 2005
Albert lagði fram gjaldskrártillögur sem gera ráð fyrir um 10 % meðalhækkun tekna. Gjaldskrártillaga samþykkt með einni breytingartillögu að festargjald verði kr. 6.714,- miðað við einn mann.
Framlögð rekstaráætlun var samþykkt með eftirfarandi breytingu.
Samþykkt að í stað 25.000 rúmmetra verði 60.000 rúmmetra dælingu í stofndýpkun innan hafnar.
Framkvæmdaáætlun samþykkt með þeim breytingum að farið yrði í framkvæmdir fyrir allt að 20,0 mkr. heildarkostnað vegna bryggju við nýtt netaverkstæði í Óslandi skv. tillögu 6, í stað 74,7 mkr. sem voru fyrir vegna stálþilsbryggju á næsta ári.
Reynir lagði til að farið yrði í frágang á fjörunni innst í höfninni ( norðan Akureyjar ) Samþykkt var að setja allt að 1,0 mkr til að bæta umhverfi afnarinnar, þar með talinn kostnaður við tillögugerð.
Einnig að stofndýpkun yrði skv. framansögðu
Albert taldi að rekstur vegna Miklagarðs bæri að skoða betur og jafnvel eðlilegt að eigendur hússins láti yfirfara ástand þess og gera tillögur um hugsanlegar úrbætur.
Hafnarstjórn samþykkir að breyta og auka sundurliðun í bókhaldi Hornafjarðarhafnar frá og með 1. janúar 2005 að telja. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að koma þessari breytingu í framkvæmd og við það að taka m.a. mið að meðfylgjandi tillögu Ara Jónssonar frá 26.11.2003 m. viðb. frá 13.12.2004 ásamt gildandi lögum og gjaldskrá hafnarinnar.
3. Þjónustubryggja vegna netaverkstæðis
Sjá lið 2. Hafnarstjóra falið að vinna að undirbúningi framkvæmda.
4. Framkvæmdir á Krosseyjarbakka
Kynnt var staða við framkvæmdir við Krosseyjarbakka. Tillögur liggja fyrir um staðsetningu löndunarkranans og að steypt verði tvö svæði á suður og vesturkanti við ?Ískantinn? hvort um 13 metra langt. Öðrum framkvæmdum við þekjuna sjálfa verði frestað þar til í vor.
Hafnarstjórn samþykkir verkáætlun framkvæmdanna.
5 Staðsetning löndunarkrana
Snorri Aðalsteinsson formaður félags smábátaeiganda mætti á fundinn og gerði grein fyrir tillögum um staðsetningu löndunarkranans sem samþykktar höfðu verið á síðasta fundi smátafélagsins ( sjá síðustu fundargerð ) en þar var áhersla lögð á að löndunarkranar yrðu staðsettir hlið við hlið.
Ásgeir lagði til að löndunarkraninn yrði staðsettur á sínum fyrri stað á Krosseyjarbryggjunni. Fundarmenn sammála.
6 Reglugerð fyrir Hornafjarðarhöfn (áður útsend)
Albert kynnti drög að reglugerð fyrir Hornafjarðarhöfn. Samþykkt að drögin fari til umfjöllunar í viðeigandi nefndum.
7 Önnur mál
Reynir spurðist fyrir um framvindu mála vegna staðsetningu á björgunarskipi
Albert gerði grein fyrir málinu.
Ari spurðist fyrir um vilja Olíufélaganna um staðsetningu á olíulögnum í Krosseyjarbryggjuna. Svör liggja ekki fyrir. Almannavarnarnefnd hefur samþykkt að beina því til Rarik að kannaður verði möguleiki á tengingu frá skipum inná dreifikerfi Rarik vegna öryggismála þegar rafmagn fer af kerfinu.
Ari vakti athygli á að hafnarstjórn þyrfti að fjalla um endurskoðun hafnarlaga.
Fundi slitið 23:00


