Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 63
63. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal Ráðhúss miðvikudaginn 24. nóvember 2004, kl. 20:00.
Mættir voru: Ari Jónsson formaður, Reynir Arnarson, Halldór Tjörvi Einarsson og Ásgeir Gunnarsson og Axel Jónsson. Sömuleiðis starfsmenn, Albert Eymundsson, Helgi Már Pálsson og Sigfús Harðarson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Fundargerð síðasta fundar samþykkt
2. Fjárhagsáætlun 2005
Albert kynnti fyrstu drög af rekstrar- og framkvæmdaáætlun fyrir Hornafjarðarhöfn árið 2005. Þar er gert ráð fyrir 47.800 þkr í rekstrartekjur, 26.540 þkr rekstrargjöld. Frá rekstri til framkvæmda eru 15.160 þkr þegar tekið hefur verið tillit til fjármagnskostnaðar að upphæð 6.100 þkr.
Gert er ráð fyrir framkvæmdum fyrir allt að 164.420, en þar af er hlutur sveitarfélagsins 57.860 þkr. en þær eru, dæling í höfninni, dýpkun á Grynnslunum, þekja við Krosseyjarbakka, raflögn í Hvanney og ný stálþils / netagerðarbryggju í Óslandi.
Hafnarstjóra falið að koma með tillögu af endurskoðun á gjaldskrá fyrir næsta fund. Afgreiðslu frestað að öðru leiti til næsta fundar
3. Þjónustubryggja vegna netaverkstæðis
Farið var yfir tillögur Siglingastofnunar sem sýna 4 hugmyndir af nýrri bryggju við netaverkstæðið í Óslandi. Kostnaður við þær er á bilinu 49,0 ? 75,0 mkr. eftir útfærslum. Samþykkt að skoða málið betur og taka það fyrir að nýju á næsta fundi.
4. Samgönguáætlun
Albert fór yfir samgönguáætlun fyrir árin 2005 ? 2008. Fundarmenn eru sammála þeirri áætlun sem kemur fram í bréfi Siglingastofnunar frá 5. júlí 2004.
5. Tilboð í þekju á Krosseyjarbakka
Tvö tilboð bárust í verkið Hornafjörður ? krosseyjarbakki, þekja og lagnir, annarsvegar frá Sveini Sighvatssyni að upphæð 39.797.374,- eða 86,1 % af kostnaðaráætlun og hinsvegar frá G Þorsteinssyni að upphæð 49.989.550,- eða 108,1 % af kostnaðaráætlun. Farið hefur verið yfir tilboðin og leggur Siglingastofnun til að gengið verði til samninga við Svein Sighvatsson.
Samþykkt að ganga til samninga við Svein Sighvatsson og að rætt verði við olíufélögin um aðstöðu fyrir afgreiðslu á olíu. Hafnarstjórn leggur áherslu á að ýtrasta vandvirkni verði höfð við framkvæmd verksins.
6. Dýpkun
Kynnt var dýptarmæling af Grynnslunum og innsiglingarrennunni frá Ós inn að höfn.
Fúsi benti á að grynningar væru að myndast á milli leiðigarðanna utan hafnarminnisins og gera þurfi ráðstafanir vegna þess. Á þessu ári hefur verið dælt tæplega 20.000 rúmmetrum og miðað við dælingu á síðasta ári þá er um 5.000 rúmmetra umframdýpkun að ræða. Gert er ráð fyrir að dæla um 60.000 rúmmetrum á næsta ári í höfninni.
Samþykkt var að leita eftir verðum í dýpkun við austurenda Loðnubryggju og vesturenda Miklagarðsbryggju.
7. Björgunarskip / Landsbjörg
· Aðkoma og afstaða hafnarstjórnar
Albert kynnti möguleika á staðsetningu björgunarskips hér á Höfn. Nefndarmenn eru sammála um að útvega aðstöðu fyrir skipið og daglegt eftirlit og umhirðu þess.
Albert er falið að ræða þessi mál áfram við Björgunarfélagið í samræmi við umræður á fundinum og kynna málið að nýju.
8. Önnur mál
Kynnt var bréf frá félagi smábátaeiganda á Hornafirði um að nýr löndunarkrani verði staðsettur við hlið þess sem fyrir er neðan Hafnarvogarinnar og til vara að hann verði staðsettur á austurkanti Álaugareyjarbryggju.
Hafnarstjóra falið að ræða frekar við félag smábátaeiganda um staðsetningu.
Reynir lagði áherslu á að frágangur við upptöku smábáta verði lokið sem fyrst
Erindi frá Litlahorni ehf þar sem óskað er eftir samstarfi við hafnaryfirvöld á Hornafirði um skoðun á möguleikum og hagkvæmni þess að gera viðlögukant á hentugum stað á innanverðum Austurfjörum., en um er að ræða útskipun á fyllingarefni frá Stokksnesi.
Hafnarstjórn tekur jákvætt undir erindið og mun gera það sem í hennar valdi stendur til að koma erindinu áfram og felur það hafnarstjóra.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 23.00


