Hafnarstjórn
Fundargerð Hafnarstjórnar 61
61. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal Ráðhúss miðvikudaginn 9. september 2004, kl. 15:00.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Reynir Arnarson, Halldór Tjörvi Einarsson og Friðrik Ingvaldsson. Sömuleiðis starfsmenn, Albert Eymundsson og Valur Sveinsson, Sigfús Harðarson og Vignir Júlíusson. Gestir fundar : Per Bruun , Gísli Viggósson, Sigurður Sigurðarson frá Siglingastofnun og Helgi Jóhannesson frá Vegagerðinni.
1. Fundargerð síðasta fundar
Fundargerð síðasta fundar samþykkt
2. Heimsókn Per Bruun og Gísla Viggóssonar
Undirbúningur og dagskrá fyrirhugaðrar ICS 2005 ráðstefnu var kynntur. Rætt var um dýpkun á Grynnslunum og aðrar fyrirhugaðar framkvæmdir við innsiglinguna. Einnig var rætt um landbrot við Jökulsárlón.
Gestirnir yfirgáfu fundinn kl. 16.15.
3. Dæling á Grynnslunum ? verksamningur til kynningar
Dæling á Grynnslunum er ekki hafin.
Engar athugasemdir voru gerðar við verksamninginn.
Stjórnin hvetur til þess að dælingar hefjist við fyrsta tækifæri.
4. Þjónustubryggja vegna netaverkstæðis
Hafnarstjóra er falið að koma bryggjuhönnuninni í áframhaldandi farveg þannig að frekari umræður geti farið fram.
5. Gjaldtaka vegna hafnarverndar
Frestað á síðasta fundi
Stjórnin samþykkir tillögu hafnarstjóra um gjaldtöku vegna hafnarverndar uppá 10.800 kr. fyrir hverja skipskomu. Síðan er gjaldtaka uppá 2.900 kr. fyrir hvern tíma unnin í dagvinnu og 5.400 kr. fyrir næturvinnu.
6. Ósk um umsögn á útgáfu endurvigtunarleyfi
Bréf Fiskistofu 27. ágúst 2004 v/Papós ehf.
Stjórnin gerir ekki athugasemdir við að Papós ehf. fái endurvigtunarleyfi.
7. Hafnasambandsþing 2004
Bréf Hafnasambands sveitarfélaga 18. ágúst 2004.
Til kynningar
8. Önnur mál
Friðrik benti á slæma umgengni þar sem áburði hefur verið skipað upp í Óslandi.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 17.05


