Hafnarstjórn
Fundargerð Hafnarstjórnar 59
59. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss miðvikudaginn 9. júní 2004, kl. 20:00.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Reynir Arnarson og Halldór Tjörvi Einarsson. Sömuleiðis starfsmenn, Helgi Már Pálsson og Sigfús Harðarsson
1. Krosseyjarbakki
Ari gerði grein fyrir stöðu mála. Borist hafa frekari og ýtarlegri gögn, en framkvæmdatrygging er ókomin. Staðfest er frá Siglingastofnun að hún sé væntanleg á morgun. Undirverktakar verða G Þorsteinsson og Hagtak. Lýkur eru á að efni í stálþil berist austur um 28. júní n.k.. Ekki er talið, að hálfu Siglingastofnunar og verktakans að það hafi áhrif á framvindu verksins.
Ari lagði fram eftirfarandi bókun
Hafnarstjórn samþykkir að gengið verði til frágangs á verksamningi við Ísar ehf um framkvæmdir við Krosseyjarbakka á grundvelli útboðsgagna, tilboðs fyrirtækisins og fyrirliggjandi viðbótargagna. Þessi viðbótargögn eru m.a. verkáætlun ( 6.6. 2004 Stefán Guðjónsson ) tækjalisti ( 7.6.2004 Stefán Guðjónsson ) upplýsingar um undirverktaka ( Hagtak ehf, G Þorsteinsson ehf ) ársreikningur Ísar ehf , 2003, ásamt greiðslustöðu Ísar ehf. vegna opinbera- og launatengdra gjalda í lok febrúar 2004. Einnig liggur fyrir fundinum staðfesting Siglingastofnunar Íslands um að afhendingu efnis í stálþil mun ekki raska umræddri verkáætlun. Hafnarstjórn leggur áherslu á að verkið verði unnið samkvæmt fyrirliggjandi útboðsgögnum og verkáætlun og að verkinu verði fylgt eftir m.a. með reglulegum verkfundum til þess að tryggja gæði verks og að verklok verði í samræmi við útboðsgögn og eigi síðar en 15. september 2004.
Samþykkt samhljóða
2. Innsiglingarrenna á Grynnslunum
Lagðar voru fram teikningar af þremur hugmyndum að staðsetningu á innsiglingarennu á Grynnslunum og magnreikningar fyrir hverja þeirra miðað við þrjá mismunandi dýptarkóta. Eftir viðræður m.a við skipstjóra og hafnsögumenn fyrr í dag lagði Ari fram eftirfarandi bókun
Hafnarstjórn samþykkir að leggja til við Siglingastofnun Íslands að fyrirhuguð tilrauna- siglingarenna verði staðsett milli leiða I og II á dýptarmælingarkorti Siglingastofnunar nr. 2801-04. Nánari staðsetning verði þannig að innri endi rennunnar verði á sama stað og innri endi leiða II og III á kortinu og ytri endi hennar verði miðja vegu milli ytri enda leiða I og II á sama korti. Einnig samþykkir hafnarstjórn að mæla með að dýpi rennunar verði 9 m og gerð verði tilraun til þess að dýpka hluta hennar niður á 10 til 11 m.
Samþykkt samhljóða
3. Útekt á verndaráætlun hafnarinnar, bréf Siglingastofnunnar
Lagt var fram bréf frá Siglingastofnun dags. 4. júni 2004, undirritað af Óskari Inga Sigmundssyni.
Fundi slitið 21:00
Ari Jónsson
Halldór Tjörvi Einarsson
Reynir Arnarsson
Sigfús Harðarsson
Helgi Már Pálsson


