Félagsmálaráð
Fundargerð félagsmálaráðs 215
215. fundur
Fundur í félagsmálaráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, þriðjudaginn 22. mars 2011 og hófst hann kl. 16:10
Fundinn sátu:
Snæfríður H. Svavarsd., Anna María Ríkharðsdóttir, Ásdís Ólafsdóttir, Óskar Arason, Sigurður Guðmundsson, Jón Kristján Rögnvaldsson,
Fundargerð ritaði: Jón Kristján Rögnvaldsson, félagsmálastjóri
Dagskrá:
1. 201102063 - Íbúaþing
Félagsmálaráð fór yfir markmið sveitarfélagsins í velferðarmálum sem komu út úr nýafstöðnu íbúaþingi. Gerðar voru athugasemdir sem sendar verða áfram til umsjónarmanna erindisins.
2. 201012038 - Reglur um úthlutun leiguíbúða
Farið yfir áorðnar breytingar á reglum um úthlutun leiguíbúða. Breytingarnar samþykktar og reglunum vísað til bæjarráðs.
3. 201103035 - Styrktarumsókn
Félagsmálaráði hefur borist erindi frá Specialisterne á Ísland þar sem óskað er eftir því að Sveitarfélagið Hornafjörður gerist stofnfjáraðili að sjálfseignarstofnuninni Sérfræðingarnir.
Félagsmálaráð hafnar erindinu.
4. 201103055 - Starfsendurhæfing Austurlands - framtíð starfseminnar
Félagsmálaráði Hornafjarðar hefur borist erindi varðandi áframhaldandi starfssemi Starfsendurhæfingar Austurlands (StarfA) vegna rekstarerfiðleika.
Starfsmanni falið að funda með aðstandendum StarfA varðandi framhaldið.
5. 201103063 - Barnaverndarmál
Fært í trúnaðarmálabók.
6. 200904090 - Barnaverndarmál
Fært í trúnaðarmálabók.
7. 201103065 - Barnaverndarmál
Fært í trúnaðarmálabók.
8. 201103062 - Erindi einstaklingsmál
Fært í trúnaðarmálabók.
9. 201103054 - Fjárhagsaðstoð
Fært í trúnaðarmálabók.
10. 201103048 - Fjárhagsaðstoð
Fært í trúnaðarmálabók.
11. 201103064 - Fjárhagsaðstoð
Fært í trúnaðarmálabók.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:05


