Félagsmálaráð
Fundargerð félagsmálaráðs 214
214. fundur
Fundur í félagsmálaráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, þriðjudaginn 22. febrúar 2011 og hófst hann kl. 16:10
Fundinn sátu:
Snæfríður H. Svavarsd., Anna María Ríkharðsdóttir, Ásdís Ólafsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Sólrún Sigurjónsdóttir, Jón Kristján Rögnvaldsson,
Fundargerð ritaði: Jón Kristján Rögnvaldsson, félagsmálastjóri
Dagskrá:
1. 201012038 - Reglur um úthlutun leiguíbúða
Nýjar reglur um úthlutun leiguíbúða samþykktar og vísað til bæjarráðs.
Kynntar tillögur að endurskoðuðu leiguverði íbúða sveitarfélagsins. Starfsmanni falið að vinna áfram að tillögum.
2. 201011054 - Daggæsla í Hornafirði
Umræður um fyrirhugað námskeið fyrir verðandi dagforeldra, ákveðið að auglýsa eftir áhugasömum einstaklingum til að starfa sem dagforeldrar en meta framhaldið eftir fjölda áhugasamra og möguleika til námskeiðshalds.
3. 201008055 - Félagslegar íbúðir
Fært í trúnaðarmálabók.
4. 201102056 - Fjárhagsaðstoð
Fært í trúnaðarmálabók.
5. 201102058 - Fjárhagsaðstoð
Fært í trúnaðarmálabók.
6. 200904090 - Barnaverndarmál
Fært í trúnaðarmálabók.


