Félagsmálaráð
Fundargerð Félagsmálaráðs 100
100. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi þriðjudaginn 4. nóv. 2003,
kl 16.10.
Mætt voru: Sigurbjörg Karlsdóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Guðrún Jónsdóttir, Margret Jóhannesdóttir og Birgir Þ. Kjartansson
1. Einstaklingsmál
Sjá trúnaðarbók.
2. Önnur mál
Félagsmálastjóri greindi frá námskeiði um þunglyndi og sjálfsvígsfræði, á vegum Landslæknisembættisins í samráði við Fræðslu-og félagssviðs Hornafjarðar, og haldið verður á Hótel Höfn 10. nóvember frá kl. 10:00 til 16:00. Yfirskrift námskeiðs: Þjóð gegn Þunglyndi.
Fyrirlesarar: Sigurður Páll Pálsson, geðlæknir, Óttar Guðmundsson, geðlæknir og Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur.
Væntanlegir þátttakendur eru frá :
Heppuskóla
Hafnarskóla
Nesjaskóla
Framhaldsskólinn í A-Skaft.
Leikskólanum Krakkakoti
Leikskólanum Lönguhólum
Æskulýðs -og tómstundaráði
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands
Sóknarprestur
Fræðslu –og félagssviði
Félagsmálaráði Hornafjarðar
Fundi slitið kl. 17:15
Sigurbjörg Karlsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
Þorbjörg Helgadóttir
Margret Jóhannesdóttir
Birgir Þ. Kjartansson


