Félagsmálaráð
Fundargerð félagsmálaráðs 208
208. fundur
Fundur í félagsmálaráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, þriðjudaginn 14. september 2010 og hófst hann kl. 16:10Fundinn sátu:
Snæfríður H. Svavarsd., Anna María Ríkharðsdóttir, Ásdís Ólafsdóttir, Óskar Arason, Sigurður Guðmundsson, Jón Kristján Rögnvaldsson,
Fundargerð ritaði: Jón Kristján Rögnvaldsson, félagsmálastjóri
Dagskrá
1. 200709065 - Fjölskyldustefna Hornafjarðar
Félagsmálaráð leggur til að fjölskyldustefna sveitarfélagsins verði prentuð til dreifingar á hvert heimili í sýslunni. Jafnframt leggur ráðið áherslu á að útgáfan fari fram á íslensku, ensku og pólsku enda sé það í samræmi við áður yfirlýst markmið félagsmálaráðs að gefa út upplýsingar á sem flestum tungumálum.
2. 201008053 - Framkvæmdaáætlun barnaverndarnefndar 2010-2014
Lagt fram fyrsta uppkast að framkvæmdaáætlun félagsmálaráðs Hornafjarðar á sviði barnaverndar. Starfsmanni falið að vinna að frekari drögum.
3. 201008054 - Neyðarvistun skv. 84.gr. barnaverndarlaga
Starfsmaður félagsmálaráðs kynnir stöðu málsins, stefnt er að því að ná samningum við tvo aðila í október til að sinna hlutverki vistforeldris vegna neyðarvistunar barna.
4. 201008055 - Félagslegar íbúðir
Íbúðum úthlutað, fært í trúnaðarmálabók.
Fært í trúnaðarmálabók.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.


