Félagsmálaráð
Fundargerð félagsmálaráðs 206
206. fundur
Fundur í félagsmálaráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,þriðjudaginn 22. júní 2010 og hófst hann kl. 16:10
Fundinn sátu:
Snæfríður H. Svavarsd., Ásdís Ólafsdóttir, Anna María Ríkharðsdóttir, Óskar Arason, Karl Sigurður Guðmundsson, Elísabet Einarsdóttir, Ragnheiður L Sigjónsdóttir, Sólrún Sigurjónsdóttir,
Fundargerð ritaði: Jón Kristján Rögnvaldsson, félagsmálastjóri
Dagskrá:
1. 201006015 - Erindisbréf félagsmálaráðs 2010
Nefndarmenn yfirfóru erindisbréf félagsmálaráðs og gerðu breytingar á því í samræmi við helstu verkefni ráðsins á kjörtímabilinu. Að því loknu skrifuðu nefndarmenn undir þagnarskyldu vegna starfa sinna í ráðinu.
2. 201006019 - Helstu verkefni félagsmálaráðs
Snæfríður H. Svavarsdóttir lagði fram eftirfarandi um helstu verkefni félagsmálráðs. Snæfríður upplýsti að listinn væri síður en svo tæmandi þar sem nefndarmenn, starfsfólk og aðrir sem hagsmuna eiga að gæta geti komið með tillögur að verkefnum sem nefndin ynni að og bætti starfsemi sveitarfélagsins. Óskaði Snæfríður eftir umræðum um framlagðan texta:
· Hlutverk félagsmálaráðs er að mörgu leyti ólíkt hlutverki annarra nefnda þar sem mikið er um mál sem gildir trúnaður um og varðar persónulega hagi einstaklinga. Með þetta til hliðsjónar ákveður félagsmálaráð að hafa umfjöllun um einstaklingsmál þannig að umsóknir og erindi verði nafnlausar eins og kostur er.
· Félagsmálaráð vill veita forstöðumanni og starfsmönnum sem vinna að málefnum fatlaðra gott bakland og stuðning í mikilvægum störfum. Stefnt er að því að flytja málaflokkinn í heild sinni heim í hérað í upphafi árs 2011. Mikilvægt er að kjörnir fulltrúar geri sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem því fylgir og taka málefni fatlaðra oftar á dagskrá en áður hefur verið gert. Stefna félagsmálaráðs í málefnum fatlaðra er í hnotskurn sú að halda forræði sveitarfélagsins yfir málaflokknum og byggja upp þjónustuna eftir óskum og þörfum notenda hennar eins og kostur er.
· Sveitarfélagið Hornafjörður er fjölmenningarlegt samfélag. Mikilvægt er að tryggja hag allra íbúa, veita þeim stuðning sem á þurfa að halda, gefa út upplýsingar um þjónustu sveitarfélagsins á tungumálum sem flestir hópar nota og tryggja öllum jöfn lífsgæði. Leitað verður eftir samvinnu við aðra aðila um uppbyggingu þjónustu við íbúa, s.s. stéttarfélög.
· Nýverið var samþykkt fjölskyldustefna fyrir sveitarfélagið og mun félagsmálaráð hafa yfirumsjón með því að unnið verði eftir áherslum hennar.
3. 201006020 - Fjárhagsaðstoð
Fært í trúnaðarmálabók.
4. 201006021 - Fjárhagsaðstoð
Fært í trúnaðarmálabók.
5. 201006022 - Fjárhagsaðstoð
Fært í trúnaðarmálabók.


