Félagsmálaráð
Fundargerð Félagsmálaráðs 99
99. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi þriðjudaginn 14. okt. 2003,
kl 16.10.
Mætt voru: Sigurbjörg Karlsdóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Guðrún Jónsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Björg Svavarsdóttir og Birgir Þ. Kjartansson
1. Einstaklingsmál
Sjá trúnaðarbók.
2. Önnur mál
Félagsmálastjóri greindi frá námskeiði um þunglyndi og sjálfsvígsfræði, á vegum Heilbrigðisstofnunar Austurlands í samráði við Landlæknisembættisins og haldið var á Eskifirði þann 24. september. s.l. Yfirskrift námskeiðs: Þjóð gegn Þunglyndi. Fyrirlesarar: Sigurður Páll Pálsson, geðlæknir, Wilhelm Norðfjörð, sálfræðingur og Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur. Félagsmálastjóri og Ragnheiður Jóhannsdóttir, sérkennslufulltrúi sóttu námskeiðið.
Félagsmálaráð beinir þeim tilmælum til stjórnar Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands að kanna hvort ekki sé unnt að halda námskeið um þunglyndi og sjálfsvísgfræði hér á Höfn.
Fundi slitið kl. 17:15
Sigurbjörg Karlsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
Þorbjörg Helgadóttir
Guðmundur Ingi Sigbjörnsson
Björg Svavarsdóttir
Birgir Þ. Kjartansson


