Félagsmálaráð
Fundargerð félagsmálaráðs 200
Fundur félagsmálaráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, þriðjudaginn 8. desember 2009 og hófst hann kl. 16:10
Fundinn sátu:
Margrét Jóhannesdóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Elísabet Einarsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Jón Kristján Rögnvaldsson,
Fundargerð ritaði: Jón Kristján Rögnvaldsson, félagsmálastjóri
Dagskrá:
1. 200810031 - Barnaverndarmál
Fært í trúnaðarmálabók.
2. 200911010 - Barnaverndarmál
Fært í trúnaðarmálabók.
3. 200911025 - Fjárhagsaðstoð
Fært í trúnaðarmálabók.
4. 200912012 - Fjárhagsaðstoð
Fært í trúnaðarmálabók.
5. 200911040 - Yfirfærsla málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur með þjónustusamningi við félagsmálaráðuneytið sinnt þjónustu við fatlaða frá ársbyrjun 1997. Á þeim tíma hefur starfsfólk sveitarfélagsins byggt upp mikla þekkingu á málaflokknum og fengið orð fyrir að veita fyrirmyndarþjónustu ásamt því að bregðast ávallt skjótt við þegar nýrra úrræða hefur verið þörf. Í ljósi góðrar reynslu sveitarfélagsins af rekstri málefna fatlaðra leggur félagsmálaráð Hornafjarðar áherslu á mikilvægi þess að Sveitarfélagið Hornafjörður verði skilgreint sem sérstakt þjónustusvæði þegar málaflokkurinn verður fluttur frá ríki til sveitarfélaga í ársbyrjun 2011 enda hafi það sýnt getu og þekkingu til að sinna þessum málaflokki.
6. 200911043 - Samþætting fjölskyldu- og atvinnulífs
Erindi lagt fram til kynningar.
7. 200911046 - Reglur vegna framkvæmdar fjárhagsaðstoðar
Samþykkt að hefja gerð nýrra reglna um framkvæmd fjárhagsaðstoðar, starfsmanni falið að koma með drög að nýjum reglum byggðar á leiðbeiningum félagsmálaráðuneytis.
8. 200912027 - Styrkumsókn
Erindi barst um styrkumsókn frá Sporthöllinni, afgreiðslu frestað.
9. 200912028 - Jólastyrkir
Félagsmálaráð samþykkir heimild til félagsmálastjóra að veita uppbót við fjárhagsaðstoð að upphæð kr. 35.000,-.


