Félagsmálaráð
Fundargerð félagsmálaráðs 158
158. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi þriðjudaginn 23.janúar 2007,
kl 16.10.
Mætt voru: Björg Svavarsdóttir, Elísabet Einarsdóttir, Erna Gísladóttir, Þorbjörg Helgadóttir og Jón Kristján Rögnvaldsson, einnig mætti á fundinn Maren Sveinbjörnsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Einstaklingsmál, færð í trúnaðarbók
2. Önnur mál
· Forstöðumaður um málefni fatlaðra, Maren Sveinbjörnsdóttir, kynnti nýjar íbúðir sveitarfélagsins að Silfurbraut 2-4 og kynnti nefndarmönnum stöðu íbúðanna og áætluð verklok. Íbúðirnar verða að öllum líkindum tilbúnar um mánaðarmótin febrúar-mars en um er að ræða almennar íbúðir þar sem fatlaðir hafa þó forgang.
Fundi slitið kl. 17:10.


