Félagsmálaráð
Fundargerð félagsmálaráðs 154
154. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi þriðjudaginn 14.nóvember 2006,
kl 16.10.
Mætt voru: Björg Svavarsdóttir, Erna Gísladóttir, Guðrún Jónsdóttir, Guðmundur I. Sigbjörnsson, Þorbjörg Helgadóttir og Jón Kristján Rögnvaldsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Einstaklingsmál, færð í trúnaðarbók.
2. Önnur mál
· Umræða um reglur um daggæslu í heimahúsum. Ákveðið að vísa reglunum til dagforeldra til skoðunar og bæjarráðs til frekari afgreiðslu geri dagforeldrar ekki athugasemdir.
· Umræða um reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum. Reglur samþykktar af hálfu félagsmálaráðs og vísað áfram til bæjarráðs. Félagsmálaráð mælir með því að greiddur verði mismunur leikskólagjalds og gjaldskrár dagforeldra.
· Erindi Vímulausrar æsku um styrkbeiðni tekið fyrir og synjað. Ákveðið að styrkja frekar forvarnarverkefni í sveitarfélaginu.
· Erindi SSA um þjónustu við innflytjendur tekið fyrir. Ákveðið að bíða eftir skýrslu frá starfshópi SSA og skoða málin í framhaldinu.
· Félagsmálaráð mælir með að bæjarráð hrindi af stað umræðu um félagslíf unglinga á grunn-og framhaldsskólaaldri með forvarnir í huga. Margt er hægt að gera betur og er það skoðun ráðsins að starfssemi kvikmyndahúss í sveitarfélaginu og efling ungmennastarfs björgunarsveitarinnar og skátastarfs ætti að vera í forgangi.
Fundi slitið kl. 17:45.


