Félagsmálaráð
Fundargerð félagsmálaráðs 145
145. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi þriðjudaginn 16. maí 2006,
kl 16.10.
Mætt voru: Sigurbjörg Karlsdóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Björg Svavarsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Jón Kristján Rögnvaldsson og Stefán Ólafsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Einstaklingsmál, færð í trúnaðarbók.
2. Önnur mál
- Uppreikningur á framfærslukvarða miðað við janúar 2006. Lagt er til að kvarðinn verði reiknaður upp samkvæmt reglum félagsmálaráðs. Grunnur kvarðans hækkar þá úr krónum 84.245. í 86.514. Samþykkt.
- Endurskoðun á endurgreiðslum til einstæðra foreldra vegna dagvistunar barna á einkaheimilum. Þessar endurgreiðslur hafa ekki verið uppreiknaðar frá því í mars 2004. Samþykkt að framreikna kvarðann miðað við breytingar á neysluvísitölu frá mars 2004 – mars 2006.
Fundi slitið kl. 17:15


