Félagsmálaráð
Fundargerð félagsmálaráðs 139
139. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi þriðjudaginn 31. jan. 2006, kl 16.10.
Mætt voru: Sigurbjörg Karlsdóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Björg Svavarsdóttir, Guðrún Jónsdóttir og Birgir Þ. Kjartansson félagsmálastjóri.
1. Einstaklingsmál, fært í trúnaðarbók.
2. Önnur mál.
Bæjarráð samþykkir á fundi sínum 19. janúar að fela félagsmálaráði að endurskoða reglur um fjárhagsaðstoð með það að markmiði að einstaklingar á aldrinum 18-24 ára geti sótt um framfærslustyrk til náms í framhaldsskóla.
Halldóra Bergljót lagði fram minnisblað dags. 18. janúar varðandi málið.
Félagsmálastjóri lagði fram til kynningar tillögur að heimildargreiðslum vegna sérstakra aðstæðna, ásamt fylgigögnum.
Fundi slitið kl. 17:15


