Félagsmálaráð
Fundargerð félagsmálaráðs 130
130. fundur
Félagsmálaráð Hornafjarðar 130. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi þriðjudaginn 9. ágúst. 2005,
kl 16.10.
Mætt voru: Björg Svavarsdóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Guðrún Jónsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson og Birgir Þ. Kjartansson félagsmálastjóri.
1. Einstaklingsmál, fært í trúnaðarbók.
2. Önnur mál
Félagsmálastjórar á Austurlandi hittust þann 25. júlí, á Egilsstöðum.
Á fundinum voru rædd um ýmis mál er snerta störf félagsmálastjóra.
Þeir voru sammála um nauðsyn þess sé að hittast og bera saman bækur sínar.
Á fundi Bæjarráðs Hornafjarðar fimmtudaginn 7. júlí s.l. var bréf félagsmálaráðuneytisins og jafnréttisstofu um jafna stöðu karla og kvenna á dagskrá og var því vísað til umfjöllunar í Félagsmálaráði.
Félagsmálaráð hvetur til þess að gerð verði könnun á launakjörum karla og kvenna sem starfa hjá sveitarfélaginu. Félagsmáraráð bendir á að hugsanlega gæti þetta verið verkefni fyrir nemendur í félagsvísindum við FAS.
Fundi slitið kl. 17:30


