Félagsmálaráð
Fundargerð félagsmálaráðs 129
129. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi þriðjudaginn 14. júní. 2005, kl 16.10.
Mætt voru: Sigurbjörg Karlsdóttir, Björg Svavarsdóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Guðrún Jónsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson og Birgir Þ. Kjartansson félagsmálastjóri.
1. Einstaklingsmál, fært í trúnaðarbók.
2. Önnur mál
Á fundi Bæjarráðs Hornafjarðar 19. mai s.l. var meðfylgjandi erindi til afgreiðslu og vísað til félagsmálaráðs.
Bandalag evrópska sveitarfélaga gegn kynþáttafordómum.
Tilefnið er að kynna að íslenskum sveitarfélögum stendur til boða að taka þátt í Bandalagi evrópska sveitarfélaga gegn kynþáttafordómum sem var stofnað til undir merkjum UNESCO í desember 2004. Evrópska bandalagið er eitt af fleiri alþjóðlegum bandalögum sem UNESCO hefur stofnað til að stuðla að því að sveitarfélög miðli á milli sín reynslu og nái þannig betri árangri í baráttu gegn kynþáttafordómum, misrétti, útskúfun og umburðarleysi. Gert er ráð fyrir að hvert bandalag samþykki 10- atriða aðgerðaráætlun og að tengja öll bandalögin saman í eina alþjóðlega keðju á árinu 2007.
Aðild sveitarfélaga að bandalaginu á sér stað í tveimur þrepum. Fyrst undirrita þau vilyrði um þátttöku og síðan aðildar-og skuldbindingaryfirlýsingu þar sem sveitarfélagið lýsir því yfir að það gerist fullur aðili að bandalaginu og 10-atriða aðgerðaráætluninni og skuldbindur sig þar með til að framkvæmda þessa lágmarksaðgerðaráætlun.
Kynningarbréf UNESCO, dags. 7.apríl s.l., fylgir hjálagt, ásamt stofnyfirlýsingu fyrir Evrópska bandalagið, yfirlýsingu um vilyrði um aðild, - um aðild-og skuldbindingu og 10-atriða aðgerðaráætluninni.
Sveitarfélög sem hafa áhuga á þátttöku er bent á að láta sviðsstjóra þróunar-og alþjóðasviðs, sambands íslenskra sveitarfélaga vita.
Félagsmálaráð telur ekki ástæður til að sveitarfélagið gerist aðili
að Bandalagi evrópska sveitarfélaga gegn kynþáttafordómum.
Félagsmálastjóri kynnti bréf félagsmálaráðuneytisins dags. 31. maí, s.l.
Þar er minnt á fjölskylduvefinn sem félagsmálaráðherra opnaði í maí 2004.
Megin hugmynd að baki fjölskylduvefnum var að búa til upplýsingavef er geymi upplýsingar um helstu málefni er snerta líf fjölskyldna í landinu.
Markmiðið með vefnum er að auðvelda fjölskyldum að átta sig á réttindum sínum og skyldum, og hvert eigi að sækja þá þjónustu sem í boði er.
Með bréfi ráðuneytisins fylgja kynningarspjöld fyrir vefinn.
Fundi slitið kl. 18:00
Sigurbjörg Karlsdóttir
Þorbjörg Helgadóttir
Guðmundur Ingi Sigbjörnsson
Björg Svavarsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
Birgir Þ. Kjartansson


